Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Kristján Baldursson
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Sólveig Regína Biard
Kristín María Stefánsdóttir
Viktoría Rannveig Larsen
Aðalsteinn Jón Bergdal
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Vista
fjölbýlishús

Skúlagata 40

101 Reykjavík

69.900.000 kr.

885.932 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2003505

Fasteignamat

63.950.000 kr.

Brunabótamat

39.600.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1990
svg
78,9 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta
svg
Laus strax

Lýsing

Trausti fasteignasala kynnir í einkasölu fallega og vel skipulagða 2ja herbergja útsýnisíbúð á 7. hæð að Skúlagötu 40. Nýbúið að endyrnýja baðherbergi. Ný brunarvarnarhurð inn í íbúð. Nýbúið að endurnýja eldhús, gólfefni og alla sólbekki og setja svalalokun. Veislusalir, líkamsræktartæki, heitur pottur og sauna í sameign hússins. Íbúðir hússins eingöngu fyrir 60 ára og eldri og verður kaupandi að vera félagi í Félagi eldri borgara. Eignin er laus við kaupsamning.

Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.

Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign
Eignin er skráð samkvæmt HMS 78,9 fm og þar af er stæði í bílageymslu skráð 15,0 fm.

Nánari lýsing:
Forstofugangur
með fataskáp og parket á gólfi.
Hol með parket á gólfi.
Stofa og borðstofa rúmgóð með parket á gólfi. Opið inn í eldhús. Útgengt á góðar svalir með glæsilegu útsýni og svalalokun.
Eldhús með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél, ofn í vinnuhæð, flísar milli skápa. Parket á gólfi.
Svefnherbergi er rúmgott með góðan skáp og parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með góða innréttingu, upphengt salerni, walk-in sturtu og handklæðaofn.
Þvottahús/geymsla innan íbúðar með skolvaski og flísar á gólfi.

Gott einkastæði í lokaðri bílageymslu fylgir eigninni.

Útsýni frá íbúðinni er m.a. út á sundin, að Akrafjalli, Esjunni og víðar. Eignina má eingöngu selja félögum í Félagi eldri borgara sem eru 60 ára og eldri. Húsvörður er í húsinu sem er búið öryggiskerfi og er Vitatorg að Lindargötu 59 í nágrenni þar sem er ýmiskonar þjónusta og afþreying fyrir eldri borgara, sjá nánar: https://reykjavik.is/stadir/lindargata-59-samfelagshus
Sameiginlegur samkomusalur er á 1. hæð sem hægt er að fá leigðan gegn vægu gjaldi. Á jarðhæð er sameiginleg aðstaða með heitum potti og sauna fyrir íbúa. Bílakjallari er með aðstöðu til að þrífa og bóna bílinn.

Nánari upplýsingar um eignina veita Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is og Kristján Baldursson, löggiltur fasteignasali, á netfanginu kristjan@trausti.is


 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

img
Aðalsteinn Jón Bergdal
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Trausti fasteignasala
Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone
img

Aðalsteinn Jón Bergdal

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
9. des. 2020
40.950.000 kr.
39.500.000 kr.
78.9 m²
500.634 kr.
30. sep. 2011
18.850.000 kr.
19.000.000 kr.
78.6 m²
241.730 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone

Aðalsteinn Jón Bergdal

Vegmúla 4, 108 Reykjavík