Lýsing
Nánari lýsing eignar íbúðar: Komið er inn í hol / gang með fataskáp og fatahengi. Á vinstri hönd við inngang er þvottahús með skolvaski og glugga. Flísalagt baðherbergi með baðkari, gluggi. Tvö svefnherbergi og eru þau bæði með fataskáp. Gluggar á tvo vegu í hjónaherbergi. Björt og rúmgóð stofa með útgangi út á svalir með fallegu útsýni. Eldhús með snyrtilegri hvítri eldri innréttingu, flísar á milli efri og neðri skápa, borðkrókur við enda eldhúss. Gólfefni íbúðar: parket og flísar á gólfum fyrir utan eldhúsið en þar er dúkur á gólfi.
Nánari lýsing íbúðarherbergis í kjallara: Herbergið skiptist í svefnkrók, opið rými og eldhúskrók. Herbergið hefur einnig aðgang að sameiginlegu baðherbergi með glugga og þar er einnig sturta.
Íbúðarherberginu fylgir aðgangur að sameiginlegu þvottahúsi. Sameiginleg hjóla- og vagnageymslu.
Góð staðsetning, stutt í Fossvogsdal, hjóla- og göngustígar í Nauthólsvík, Elliðarárdal. Leikskólar og skólar í næsta nágrenni. Í Fossvoginum má finna frisbígolfvöll, blakvelli, fótboltavelli, leiksvæði og íþróttahús.
Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali í síma 690 3111 eða andri@landmark.is
Umsagnir viðskiptavina HÉR
Fylgdu mér á Facebook
Fylgdu mér á Instagram
Pantaðu FRÍTT söluverðmat á www.frittsoluverdmat.is
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat