Upplýsingar
Byggt 2000
102,4 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Bílastæði
Lyfta
Laus strax
Lýsing
Eignin er laus fljótlega eftir kaupsamning.
Valný fasteignasala og Valgeir Leifur, löggiltur fasteignasali, kynna til sölu bjarta og rúmgóða þriggja herbergja íbúð á vinsælum stað í Túnunum. Íbúðin er á 1. hæð með hellulagðri suðurverönd. Eigninni fylgir sérstæði í bílakjallara og þrjár geymslur.
Möguleiki er að opna rýmið enn frekar með því að sameina eldhús og stofu. Sameign er snyrtileg, lyfta er í húsinu, rafstýrðar hurðaopnanir eru í sameign og myndavéladyrasími.
Nánari upplýsingar veitir Valgeir Leifur / Löggiltur fasteignasali / 780-2575 / valgeir@valny.is
Smelltu hér til að fá öll helstu gögn um eignina.
Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 102,4 m², þar af er íbúðarrými 97,5 m² og sérgeymsla í kjallara 4,9 m². Eign merkt 01-02, fastanúmer 225-0490 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Lýsing og skipulag eignar:
Forstofa er með viðarparketi á gólfi og ágætum fataskáp.
Stofa og borðstofa eru bjartar og rúmgóðar með viðarparketi á gólfi. Útgengt út á hellulagða verönd.
Eldhús er með L-laga innréttingu með uppþvottavél, ísskáp, helluborði, viftu og bakaraofni í vinnuhæð. Vaskur er með rafmagnskvörn og flísar eru á milli innréttinga. Gengið er bæði inn í stofu og borðstofu, veggur á milli þeirra er léttur án burðar, sem gefur möguleika á að opna eldhúsrýmið enn frekar.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með baðkari, vegghengdu salerni, handklæðaofni og innréttingu með speglaskáp.
Svefnherbergi I er rúmgott með stórum fataskáp eftir heilum vegg og viðarparketi á gólfi.
Svefnherbergi II er einnig með fataskáp og viðarparketi á gólfi.
Þvottahús er með flísalögðu gólfi, ágætri aðstöðu fyrir þvottavél og stálvaski.
Geymsla I er innan íbúðar, nett rými sem nýtist vel sem lítil geymsla eða fataherbergi. Viðarparket á gólfi.
Geymsla II er staðsett í kjallara og er 4,9 m², skráð í uppgefna fermetratölu eignarinnar.
Geymsla III er einnig í kjallara, tæpir 5 m² en er utan skráðrar fermetrastærðar. Hún er staðsett í afmörkuðu sameignarrými sem hefur verið skipt niður í læstar sérgeymslur.
Sérbílastæði í bílakjallara fylgir eigninni. Rafmagnsstofnar hafa verið lagðir í bílakjallara, sem auðveldar uppsetningu á hleðslustöð fyrir rafbíla.
Byggingarlýsing:
Húsið var byggt árið 2000 og er sjö hæða fjölbýlishús ásamt kjallara með lyftu. Útveggir hússins eru steyptir og klæddir. Sameign er snyrtileg með rafstýrðum hurðaopnunum og myndavéladyrasíma. Lyfta er í húsinu, sem nær frá bílakjallara upp á efstu hæð. Bílageymslan er snyrtileg, búið er að leggja rafmagnsstofna sem auðveldar uppsetningu á hleðslustöðvum fyrir rafbíla.
Lóð og aðkoma:
Húsið stendur á gróinni lóð með sameiginlegum bílastæðum auk bílageymslu og leiksvæði fyrir börn. Á jarðhæð er hjóla- og vagnageymsla næst lyftu, með sérútgangi. Í næsta nágrenni er fjölbreytt þjónusta, verslanir, skólar, leikskóli og íþróttastarf. Íbúðin er staðsett á vinsælum stað í Túnunum, nálægt Teigahverfi og miðborginni.

Valný Real Estate Agency advises both sellers and potential buyers, who do not have Icelandic as their first language, to get the assistance of a translator when viewing and signing all necessary documents relating to buying and selling properties.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valný fasteignasala bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Kostnaður sem kaupandi þarf að standa straum af:
1. Stimpilgjald:
- 0,8% af fasteignamati
- 0,4% fyrir fyrstu kaupendur
- 1,6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingagjald: 2.700 kr. á hvert skjal (kaupsamningur, veðleyfi o.fl.)
3. Lántökukostnaður: Samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Þjónustu- og umsýslugjald fasteignasölu: Samkvæmt gjaldskrá Valný fasteignasölu.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða, ber kaupanda að greiða skipulagsgjald sem nemur 0,3% af brunabótamati þegar það er innheimt.
- Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.
Valný fasteignasala | www.valny.is | Tjarnargötu 2, 230 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00