Lýsing
Hlíðarhorn.is kynnir Valshlíð 3 - Íbúð 505.
Íbúðin er staðsett í fyrsta áfanga Hlíðarhorns, glæsilegri nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum. Íbúðir afhendast fullbúnar vorið 2025.
Fáðu nánari upplýsingar og gerðu jafnvel tilboð beint á sölusíðu eignarinnar í eCASA.
Rúmgóð og stórglæsileg 2ja herbergja þakíbúð með útsýni í vestur. Birt stærð er 85,5 fm þar af 8,7 fm geymsla í kjallara. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús með eyju og stofu/borðstofu í opnu rými með útgengi á svalir, svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi. Íbúðin afhendist með vönduðum sérsmíðuðum innréttingum frá Nobilia/GKS, gæðaraftækjum frá Siemens, vönduðum ítölskum blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie, og sterku og vönduðu gólfefni frá Álfaborg. Íbúðin er útbúin sér loftræstikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema íbúðar er Mói 1. Íbúðin er fyrir 50 ára og eldri.
Nánari lýsing: Í anddyri er góður fataskápur. Gengið er úr anddyri beint inn í glæsilegt alrými, eldhús með eyju og stofu/borðstofu með útgengi á rúmgóðar útsýnissvalir (vestur). Taupe grá eldhúsinnrétting, svartur quartz-steinn á borðum og milli skápa og vönduð ítölsk blöndunartæki úr byssubláu stáli. Innbyggður ísskápur. Rúmgott svefnherbergi með góðum fataskápum. Baðherbergi með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Gráar steinflísar á gólfi og veggjum, taupe grá innrétting og speglaskápur með lýsingu. Blöndunartæki á baði úr byssubláu stáli. Innan af baði er þvottaherbergi með ljósri inntéttingu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Grár steinflísar á gólfi þvottaherbergis. Sérgeymsla íbúðar í kjallara er merkt 0044. Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar þar sem íbúar munu hafa forgang.
Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Allar íbúðir eru fullloftræstar og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist í hverri íbúð. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og bambus, með gluggum úr ál/við og undir byggingu er bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingarar. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir.
Heimasíða verkefnis: www.hlidarhorn.is
Frekari upplýsingar um íbúðina og Hlíðarhorn er einnig að finna í skilalýsingu seljanda á heimasíðu verkefnisins, ásamt upplýsingum er varða hönnun byggingarinnar.
ATH: Fasteignasalan Hlíðarhorn er í eigu aðalverktaka og eiganda fasteignarinnar, S8 ehf. Myndir innan úr íbúð geta verið úr annarri íbúð með sama innréttingarþema.
Kaupendur munu greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.
Gjöld sem kaupandi þarf einnig að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi; fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.