Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Elín Káradóttir
Hrönn Bjargar Harðardóttir
Kristín Rós Magnadóttir
Vista
raðhús

AUSTURTÚN 15B

700 Egilsstaðir

63.500.000 kr.

661.458 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2534397

Fasteignamat

33.200.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2025
svg
96 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

BYR fasteignasala kynnir í einkasölu AUSTURTÚN 15B, 700 Egilsstaðir. Ný þriggja herbergja íbúð í raðhúsi í Votahvammi á Egilsstöðum. Smellið hér fyrir staðsetningu. 
Húsið er byggt úr forsteyptum einingum, samtals 96.0 m² samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag eignar: Forstofa, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús, geymsla/tæknirými.

Húsinu verður skilað fullfrágengnu að innan og utan samkvæmt skilalýsingu. Afhending júní 2025. 

Nánari lýsing: 
Forstofa með fataskáp.
Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, útgengt er úr stofu út á steypta verönd til suðurs.
Eldhús, Brúnás innrétting, AEG tæki spanhelluborð og ofn í vinnuhæð, Elica vifta.
Gert er ráð fyrir innbyggðri uppþvottavél og ísskáp í innréttingu (tæki og hurðar fylgja ekki).
Svefnherbergin eru tvö.
Hjónaherbergi er með fataskápum.
Barnaherbergi, án fataskápa. 
Baðherbergi, sturta, upphengt salerni og vaskinnrétting, handklæðaofn. Flísar á gólfi og á veggjum sturtuhorns. 
Þvottahús með innréttingu frá Brúnás, kústaskápur, pláss fyrir tvær vélar, vaskur í borði.
Geymsla/tæknirými, gengið er inn í geymslu utan við húsið, inntök veitna, rafmagn og vatn er í tæknirými. 
Allar innréttingar í eldhúsi, baðherbergi, þvottahúsi og fataskápar eru frá Brúnás innréttingum.
Gólfefni: Vínylparket er á alrými, gangi og svefnherbergjum. Flísar á forstofu, baðherbergi og þvottahúsi. Málað gólf á geymslu/tæknirými. 
Húsið er hitað upp með gólfhita í öllum rýmum, handklæðaofn er á baðherbergi. 

AUSTURTÚN 15 er fjögurra íbúða raðhús á einni hæð. Húsið er byggt úr forsteyptum einingum frá MVA. Húsið er hannað af SNIDDU arkitektastofu. 
Útveggir eru 280 mm forsteyptar einingar, botnplata er staðsteypt. Húsið er málað að utan. Þak er upp-stólað mænisþak klætt með GreenCoat stálklæðning (Límtré Vírnet) (litað stál).
Gluggar og hurðar eru ál-tré frá Rationel með tvöföldu K-gleri. Lóð er frágengin með torfi, steypt stétt að húsi, steypt bílaplan fyrir tvær bifreiðar framan við húsið og steypt verönd til suðurs aftan við húsið. Tengimöguleiki er fyrir rafbílahleðslur við bílastæði (lagnaleið, ekki er lagt í). Forsteypt fjögurra tunnu sorptunnuskýli frá MVA fylgir. Lóð er sameiginleg 1190.0  m² leigulóð í eigu Múlaþings.

Samþykktir aðaluppdrættir hönnuða eru gildandi ef upp kemur misræmi milli þeirra og annarra gagna.
Allt auglýsinga- og kynningarefni eins og tölvugerðar myndir og teikningar eru eingöngu til hliðsjónar.
Laus búnaður og annað sem kann að vera sýnt á teikningum eða þrívíddar myndum en er ekki talið upp í skilalýsingu fylgir þannig ekki íbúðum.

Athygli er vakin á því að á meðan byggingarframkvæmdum stendur áskilur seljandi sér allan rétt til að gera tækni-, efnis- og útlitsbreytingar.
Um er að ræða eign í byggingu og brunabótamat liggur ekki fyrir, kemur það í hlut kaupanda að greiða skipulagsgjald 0,3% þegar þess verður krafist.


 


ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 483 5800 - byr@byrfasteignasala.is 
Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is
Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - hronn@byrfasteignasala.is
Sigurbjörg Halla Sigurjónsdóttir, löggiltur fasteignasali - silla@byrfasteignasala.is

Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.

Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.        
Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
 
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi -  0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga  / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

www.byrfasteign.is |  Austurmörk 7, 810 Hveragerði - Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala

Byr fasteignasala

Byr fasteignasala

Austurmörk 7, 810 Hveragerði
Byr fasteignasala

Byr fasteignasala

Austurmörk 7, 810 Hveragerði