












Lýsing
Miklaborg kynnir: Hallgerðargata 9a, 104 Reykjavík, 2ja herbergja íbúð á 4. hæð - efstu (íbúð 415), samtals 76 fm. Parket, flísar og teppi á gólfum. Lyfta.
Geymslan í kjallara eru rúmir 7 fm en með góðu millilofti sem búið er að setja upp.
Aðgengi að bílakjallara gegn gjaldi (mánaðarleiga ca 9 þús). Sameiginlega hjóla- og vagnageymsla.
Hljóðvist í húsinu er í hávegum höfð hvort sem um er að ræða hljóð utan eða á milli íbúða hússins. Uppbygging útveggja og þaks sem og hljóðeinangrun glugga er eins og best verður á kosið að teknu tilliti til hljóðvistar.
Öll rými eru að fullu loftræst inn og út og þarf því ekki að opna glugga til að fá ferskt loft inn. Tryggir betri loftgæði og er góð vörn gegn raka og ryki.
Nánari lýsing: Þegar inn er komið tekur við forstofa. Rúmgott svefnherbergi með góðu skápaplássi. Baðherbergið er með walk-inn sturtu, innréttingu, handklæðaofni og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Stofa, borðstofa og eldhús saman í opnu rými, aukin lofthæð. Útgengt út á svalir í suður. Vandaðar innréttingar og tæki. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél sem fylgja með í kaupunum ásamt föstum innréttingum og hillum. Í heildina mjög góð og falleg íbúð með góðu innra skipulagi. Íbúðin er til afhendingar við kaupsamning.
Nánari upplýsingar gefur Gústaf Adolf lgf., gustaf@miklaborg.is / 895-7205.