Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Rúnar Samúelsson
Andri Sigurðsson
Þórey Ólafsdóttir
Sveinn Eyland
Ingibjörg Agnes Jónsdóttir
Guðrún Diljá Lúðvíksdóttir
Þórarinn Thorarensen
Monika Hjálmtýsdóttir
Júlíus Jóhannsson
Freyja Rúnarsdóttir
Jón Óskar Karlsson
Vista
fjölbýlishús

Leirubakki 18

109 Reykjavík

69.700.000 kr.

654.460 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2048021

Fasteignamat

57.650.000 kr.

Brunabótamat

50.000.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1970
svg
106,5 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

LANDMARK fasteignamiðlun ehf. og Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali (s: 690 3111 / andri@landmark.is) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu:

Virkilega falleg og mjög mikið endurnýjuð 4ra - 5 herbergja endaíbúð á 3. hæð í fallegu 3ja hæða fjöbýlishúsi við Leirubakka 18, 109 Reykjavík. Í dag eru þrjú svefnherbergi í íbúðinni en möguleiki að breyta innra skipulaginu og bæta því fjórða við. Mjög snyrtileg og vel umgengin sameign - tvær íbúðir á hæð - nýleg eldhúsinnrétting ásamt rafmagnstöflu og ofnum einnig hefur verið dregið í allt rafmagn í íbúðinni - nýlega endurnýjað eldhús og baðherbergi ásamt fataskápum og gólfefnum - nýleg svalahurð og gluggi endurnýjaður. Húsfélagið á íbúð sem er leigð út og renna mánaðarlegar leigutekjur í hússjóðinn. Seljandi skoðar skipti á minni eign upp í hluta kaupverðs

SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT OG ALLAR FREKARI

Eignaskiptasamningur: Eignin er tvö herbergi, þvottur, bað, hjónaherbergi, skáli og dagstofa ásamt eldhúsi merkt (0301), svalir merktar (0304) ásamt geymslu í kjallara merkt (0005). Eigninni tilheyrir einnig hlutdeild í sameign allra samkvæmt hlutfallstölu í matshlutanum, ásamt hlutdeild í sameiginlegri lóð, húsi og breiðbandsmögnurum samkvæmt hlutfallstölu í húsi, og hlutdeild í bílastæðum samkvæmt hlutfallstölu þar um.

Nánari lýsing eignar: Komið er inn í forstofu, nýlegur fataskápur. Björt og rúmgóð stofa og borðstofa með útgangi út á svalir. Möguleiki að breyta hluta stofunnar í fjórða svefnherberbergið. Parketlagt hol. Sér þvottahús með nýlegri innréttingu þar sem er tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Flísalagt baðherberg í hólf og gólf, baðkari, neðri skápur, handklæðaofn, upphengt salerni og gluggi. Svefnherbergin eru þrjú og er fataskápur í öllum herbergjum. Þvottahús með innréttingu, vask og glugga. Eldhús með fallegri stórri innréttingu sem nær alveg upp í loft, flísar á milli efri og neðri skápa, Samsung ofn og helluborð. Eigninni fylgir sérgeymsla með hillum í sameign ásamt aðgangi að sameiginlegri geymslu og hjóla- og vagnageymslu. Gólfefni íbúðar: parket og flísar á gólfum.

UM ER AÐ RÆÐA MJÖG FALLEG OG VEL SKIPULAGÐA ÍBÚÐ Í SNYRTILEGU OG FALLEGU FJÖLBÝLISHÚSI. STUTT Í MJÓDDINA ÞAR SEM ER FJÖLBREYTT ÞJÓNUSTA ÁSAMT STRÆTISVAGNAMIÐSTÖÐ, FLJÓTLEGT ÚT Á STOFNBRAUTIR

Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali í síma 690 3111 eða andri@landmark.is

Umsagnir viðskiptavina HÉR
Fylgdu mér á Facebook
Fylgdu mér á Instagram

Pantaðu FRÍTT söluverðmat á www.frittsoluverdmat.is
 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 74.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Fáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA

img
Andri Sigurðsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
LANDMARK fasteignamiðlun
Hlíðasmári 2, 201 Kópavogur
LANDMARK fasteignamiðlun

LANDMARK fasteignamiðlun

Hlíðasmári 2, 201 Kópavogur
phone
img

Andri Sigurðsson

Hlíðasmári 2, 201 Kópavogur
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
30. ágú. 2018
33.950.000 kr.
39.500.000 kr.
106.5 m²
370.892 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
LANDMARK fasteignamiðlun

LANDMARK fasteignamiðlun

Hlíðasmári 2, 201 Kópavogur
phone

Andri Sigurðsson

Hlíðasmári 2, 201 Kópavogur