Lýsing
Miklaborg kynnir: Til sölu glæsileg og nýleg 2ja herbergja íbúð í nýlegu lyftuhúsi við Skipholt 11-13. Um er að ræða fallega og bjarta 77,2 fm íbúð á 2. hæð með 21,9 fm suðursvölum á eftirsóttum stað í Reykjavík. Fallegar innréttingar og vandaður frágangur.
Nánari lýsing:
Gengið er inn í forstofu með rúmgóðum fataskáp. Inn af forstofu er gangur með miklu skápaplássi og innbyggðu vinnuborði í innréttingu. Stofa og eldhús eru í einu björtu rými sem snýr í suður og úr því rými er gengið út á 21,9 fm suður svalir sem eru yfirbyggðar að hluta. Glæsilegt eldhús með miklu skápaplássi, innfelldri lýsingu undir skápum og öll helstu raftæki fylgja (helluborð, vifta, tvískiptur ísskápur, uppþvottavél). Baðherbergi er vandað og flísalagt að mestu, góð innrétting og upphengt salerni. Sturtuklefi með glervegg og innbyggðum tækjum. Handklæðaofn og tengingar fyrir þvottavél og þurrkara. Hjónaherbergi með fataskápum á einum vegg. Á öllum gólfum nema á baðherbergi er harðparket.
Á jarðhæð er sér 8 fm geymsla sem fylgir íbúðinni og stór sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Fjöldi bílastæða er á malbikaðri baklóð hússins.
Skipholt 11-13 var endurbyggt árið 2015 og íbúðarhæðum bætt ofan á húsið.
Hér er um að ræða fallega og vandaða íbúð á besta stað í Reykjavík. Stutt er í verslun og þjónustu en Bónus er á jarðhæð hússins. Miðbærinn er í göngufæri og stutt labb í leikskóla, Borgartún og almenningsgarðinn Klambratún.
Allar nánari upplýsingar gefa Gabríel Máni Hallsson löggiltur fasteignasali í síma 772 2661 eða gabriel@miklaborg.is og Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697 9300 eða svan@miklaborg.is