Lýsing
HOFTEIGUR 36 ER SELD MEÐ FYRIRVARA. GRÍÐARLEGUR ÁHUGI VAR Á EIGNINNI, VIÐ ERUM MEÐ ÁHUGASAMA KAUPENDUR Á SKRÁ AÐ LEITA SÉR AÐ GÓÐUM UPPGERÐUM EIGNUM Í HVERFINU.
Húsaskjól og Jóhanna Gustavsdóttir löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Einstaklega fallega og mikið endurnýjaða 3ja herbergja íbúð í kjallara með sérpalli í þríbýlishúsi við Hofteig 36. Að húsinu liggur hellulagður stígur með snjóbræslu. Íbúðin er skráð samtals 81,0 fm að stærð og þar af er 2,8 fm sér geymsla í sameign. Eignin skiptist í forstofu, hol, stofu, baðherbergi, eldhús, tvö herbergi, geymslu og sameiginlegan geymsluskúr á lóð. Einnig er sameiginlegt þvottahús á hæðinni og mjög þægilegt aðgengi að því.
VINSAMLEGAST SMELLTU HÉR TIL AÐ NÁ Í UPPLÝSINGABÆKLING
Allar nánari upplýsingar veitir Jóhanna Gustavsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 698 9470, netfang: johanna@husaskjol.is
Gólfefni íbúðarinnar eru nýlegt parket og flísar.
Nánari lýsing á eign: Gengið er inn um sameiginlegan flísalagðan inngang. Komið inn í hol með tveimur innbyggðum skápum. Tvö svefnherbergi. Barnaherbergið (upprunalega hjónaherbergið) er mjög rúmgott með endurnýjuðum góðum fataskápum sem ná yfir heilan vegg og eru með rennihurðum. Hjónaherbergið er með nýlegum tvöföldum hvítum fataskáp. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, upphengt salerni, hornbaðkar og handklæðaofni, hvít innrétting. Eldhús og stofa er opið rými, endurnýjuð hvít eldhúsinnrétting sem er L-laga, með efri og neðri skápum og mjög góðu borðplássi. Eldhústækin eru endurnýjuð og vönduð, spanhelluborð, innbyggður ísskápur og uppþvottavél, innbyggð vifta og blástursofn með kjöthitamæli . Frá stofu er gengið út á sólpall sem er sérafnotareitur og þaðan út í sameiginlegan garð sem vísar að mestu í suður og er afgirtur og er mjög skjólgóður. Geymsluskúr í garði sem er sameiginlegur.
Hér er um að ræða einstaklega fallega og mikið endurnýjaða 3ja herbergja íbúð í vinsælu fjölskylduvænu og grónu hverfi við Laugardalinn í Reykjavík. Hinum megin við götuna eru leikskólinn Hof og Laugarnesskóli. Göngufæri í grasagarðinn, fjölskyldu-og húsdýragarðinn, Laugardagslaug og World Class. Einnig er stutt í ýmsa verslun og þjónustu eins og matvörubúð, kaffihús og ísbúð svo eitthvað sé nefnt.
Að sögn seljanda hefur eftirfarandi verið endurnýjað:
2023: Nýtt parket og gólflistar á íbúð, íbúð máluð, skipt um allt gler og glugga í íbúð
2022 Nýtt dren, snjóbræðsla sett í hellulagðan göngustíg að húsin, skipt um ofnalagnir
2020 Nýtt eldhús, eldhústæki og blöndunartæki, ný blöndunartæki á baði, skipt um glugga í sameiginlegu þvottahús, sameign máluð, nýr fataskápur í hjónaherbergi
2016 Húsið var steinað að utan og skipt um þakpappa og þakjárn.
2012/13 Skipt um skolp. Einnig skipt um kaldar og heitar neysluvatnslagnir að hluta
Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Jóhanna Gustavsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 698 9470, netfang: johanna@husaskjol.is
Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar
Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls
Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer, sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald. Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði