Opið hús: HEIÐMÖRK 64 B , 810 Hveragerði. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 22. apríl 2025 milli kl. 13:00 og kl. 13:30. VINSAMLEGA LÁTIÐ VITA AF KOMU Á OPIÐ HÚS Í SÍMA 483-5800 EÐA byr@byrfasteignasala.is
Lýsing
Stutt í alla helstu þjónustu, suðurgarður. Smellið hér fyrir staðsetningu.
Húsið steypt, byggt árið 2019, eignin skiptist í íbúð 100.5 m² og bílskúr 27.0 m², samtals 127.5 m² samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag eignar: Anddyri, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, tvö svefnherbergi, baðherbergi, hol, þvottahús/fataherbergi, geymsla og bílskúr.
Nánari lýsing:
Anddyri með tvöföldum fataskáp.
Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, síðir gluggar. Útgengt er frá stofu út á timburverönd til suðurs, skjólveggir.
Eldhús, hvít eldhúsinnrétting með háglans áferð, eyja með AEG keramik helluborði, AEG ofn í vinnuhæð og innbyggð Electrolux uppþvottavél og innbyggður Siemens ísskápur fylgir með.
Hol er við alrými, þaðan er innangengt í hjónaherbergi, baðherbergi og þvottahús/geymslu.
Herbergi I, hjónaherbergi, útgengt út á verönd, án fataskápa.
Herbergi II, við anddyri, án fataskápa.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, vask innrétting, upphengt salerni, sturta og handklæðaofn.
Þvottahús/fataherbergi, innrétting með hækkun fyrir tvær vélar og stálvaskur, þrefaldur fataskápur í þvottahús hluta og tvöfaldur fataskápur. Innangengt í bílskúr.
Bílskúr, rafræn opnun á bílskúrshurð (tvær fjarstýringar), inngönguhurð við hlið útidyrahurðar.
Gólfefni: Harðparket á alrými, svefnherbergjum og holi. Flísar á baðherbergi og þvottahúsi/geymslu.
Gólfhiti er í eigninni, gólfhitastýringar á veggjum. Innfelld lýsing í alrými og á baðherbergi. Innréttingar, skápar, hurðar, flísar og parket eru frá Parka.
Heiðmörk 64 A-D er hannað af ALARK arkitektum, Jakob Emil Líndal - Arkitekt FAÍ.
Húsið er byggt úr forsteyptum einingum. Áferð eininga er slétt sjónsteypa blandað við veggi klædda með olíubornum timburlistum. Timbur gluggar og hurðar.
Frágengin lóð, timburverönd með skjólveggjum er sunnan megin við húsið, steyptir veggir eru á milli garða, gert er ráð fyrir heitum potti á verönd (getur mögulega fylgt).
Hellulagt bílaplan fyrir tvær bifreiðar, hitalögn í bílaplani, aðkoma að húsi er hellulögð. Sorptunnuskýli er framan við hús. Í lóðarsameign eru tvö bílastæði, annað þeirra er fyrir hreyfihamlaða.
Raðhúsið Heiðmörk 64 A-D samanstendur af 4 raðhúsaíbúðum. Lóð er 1597,4 m² leigulóð í eigu Hveragerðisbæjar.
Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:
Fasteignanúmer 250-4878.
Stærð: Raðhús 100.5 m². Bílskúr 27.0 m². Samtals 127.5 m².
Brunabótamat: 77.000.000 kr.
Fasteignamat: 78.100.000 kr.
Byggingarár: 2019.
Byggingarefni: Steypa.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 483 5800 - byr@byrfasteignasala.is
Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is
Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - hronn@byrfasteignasala.is
Sigurbjörg Halla Sigurjónsdóttir, löggiltur fasteignasali - silla@byrfasteignasala.is
Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.
Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
www.byrfasteign.is | Austurmörk 7, 810 Hveragerði - Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala