Lýsing
Hér má sjá deiliskipulag fyrir Litla-Hof Stutt er í alla þjónustu á Hellu eða Hvolsvelli. Matvöruverslanir, sundlaugar, læknisþjónusta, vínbúð, byggingavöruverslanir og veitingastaðir. Hella er 14 km frá og Hvolsvöllur er 11 km frá Litla Hofi. Golfvöllur er á Strönd, 8 km frá Litla Hofi. Helstu náttúruperlur sem eru nálægar eru til að mynda Fjallabak, Hekla, Tindfjallajökull, Þórsmörk o.fl. Íbúðarlóðirnar eru eignarlönd en hægt er að sækja um lögbýli. Lóðirnar eru stórar og þar af leiðandi er byggingarmagn mikið. Byggja má allt að 350 fm einbýli, 120 fm gestahús, 120 fm bílskúr/vinnuskúr og 40 fm garðhús/áhaldahús. Byggingarleyfi fæst í samráði við viðkomandi sveitarfélag. Seljandi skilar vegi, köldu vatni, rafmagni og ljósleiðarararöri að lóðamörkum.
Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn löggiltur fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is