Upplýsingar
Byggt 2020
54,3 m²
2 herb.
1 baðherb.
1 svefnh.
Lyfta
Laus strax
Lýsing
Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Geirþrúðarhagi 1 - 206
Um er að tveggja herbergja íbúð á 2. hæð í 19 íbúða 3ja hæða fjölbýli með lyftu. Eignin er skráð samtals 54,3 fm. að stærð, þar af er geymsla í sameign 2,3 fm. Rúmgóðar svalir til norðurs.
Eignin er laus til afhendingar við samningsgerð.
Íbúðin skiptist í forstofu/gang með fataskáp, eitt rúmgott svefnherbergi með góðum fataskáp, baðherbergi með upphengdu wc, sturtu með glervængjum, innrétting við vask ásamt speglaskáp og stæði fyrir þvottavél í innréttingu. Eldhús og stofu í opnu rými með útgengi út um rennihurð út á rúmgóðar svalir til norðurs. Góð innrétting í eldhúsi með flísum milli efri og neðri skápa. Uppþvottavél og ísskápur fylgja með.
Parket er á íbúð fyrir utan baðherbergi þar eru flísar á gólfi.
Annað:
- Gólfhiti
- Mynddyrasími
- Hljóðdempandi plötur í loftum
- Stutt í útivistarparadísina í Naustaborgum og Kjarnaskógi
- Lyfta
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:
bjorn@byggd.is
greta@byggd.is
olafur@byggd.is
Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955