Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Arnar Birgisson
Lína Rut Olgeirsdóttir
Tryggvi Gunnarsson
Bergþóra Höskuldsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Norðurgata 17a

600 Akureyri

39.900.000 kr.

359.459 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2149480

Fasteignamat

39.050.000 kr.

Brunabótamat

37.500.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1880
svg
111 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

EIGNAVER 460-6060

Norðurgata 17a
Til sölu íbúð á 2. hæð og risi í gömlu blágrýtishúsi á Eyrinni á Akureyri - samtals 111,0 m². 


Nánari lýsing:
Íbúðin skiptist í stigauppgang, forstofu, þvottahús/geymsla, baðherbergi, eldhús, borðstofa og stofa í opnu rými og ris.

Sérinngangur er í íbúðina, gengið er inn vestan megin við húsið. Þar er lítil forstofa með teppi og þaðan gengið upp stiga og þar er rúmgóð forstofa, þar er dúkur á gólfi, úr forstofu er farið inn í þvottahús/geymslu með glugga, tengi er fyrir þvottavél og þurrkara. Úr forstofunni er einnig farið inn í íbúðina. Baðherbergi er strax á vinstri hönd. þar er dúkur á gólfi, sturtuklefi og lítil innrétting með vask, gluggi er á baði. Veggir eru að hluta flísalagðir og hluta klæddir panel sem búið er að mála hvítan. Stofan, borðstofan og eldhúsið eru í opnu rými, þar er parket,  viðarinnrétting í eldhúsi, dökk borðplata og flísar milli efri og neðri skápa. Tréstígi er upp á rishæðina sem er 24 fm. að stærð. Í risi eru tvö rými, gamlar málaðar fjalir á gólfum og nýlegur panell í loftum. 
 
-Eignin er í gömlu húsi á Eyrinni á Akureyri. Húsið er hlaðið úr blágrýti og er eina hús bæjarins sem byggt er með þessari tækni, þ.e. með veggi hlaðna úr grjóti, bundið saman með kalkmúr og fyllt í rifur að utan með sementsmúr. Árið 1982 var húsið friðið í B-flokki samkvæmt þjóðminjarlögum að ósk bæjarstjórnar Akureyrar. 
 
Annað 
Skipt um þak á viðbyggingu 2024
- Viðbygging endurnýjuð að hluta svo sem, klæðning veggja og loft ásamt rafmagni.
- Gluggar og gler endurnýjað (nema í kjallara)
- Kjallari er undir húsinu, ekki með fullri lofthæð (utangengt)
- Raf- og vatslagnir í íbúðinni hafa verið endurnýjaðar. 
- Lóðin er eignarlóð í óskiptri sameign.
- Ofnar hafa verið endurnýjaðir að undanskyldum tveimur ofnum.

Nánari upplýsingar veita:
Begga           s: 845-0671   / begga@eignaver.is
Arnar             s: 898-7011   / arnar@eignaver.is
Tryggvi          s: 862-7919   / tryggvi@eignaver.is



 
 

Eignaver fasteignasala ehf

Eignaver fasteignasala ehf

Hafnarstræti 97 (krónan), 600 Akureyri
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
15. jan. 2016
16.400.000 kr.
15.000.000 kr.
111 m²
135.135 kr.
10. okt. 2007
11.160.000 kr.
5.350.000 kr.
111 m²
48.198 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Eignaver fasteignasala ehf

Eignaver fasteignasala ehf

Hafnarstræti 97 (krónan), 600 Akureyri
phone