Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
fjölbýlishús

Hafnarstræti 81

600 Akureyri

39.900.000 kr.

571.633 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2280870

Fasteignamat

32.600.000 kr.

Brunabótamat

37.000.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1947
svg
69,8 m²
svg
2 herb.
svg
1 svefnh.
svg
Lyfta

Lýsing

Fasteignasalan Hvammur 466 1600

2ja herbergja íbúð á 2. hæð í fjölbýli við Hafnarstræti 81 í miðbæ Akureyrar með svalir til austurs út að Hafnarstrætinu.  Íbúðin sjálf er 60,3 m² og geymsla á jarðhæð 9,5 m²

Íbúðin skiptist í forstofu, stofu og eldhús í einu alrými, baðherbergi, svefnherbergi og geymslu á jarðhæð.


Forstofa er með parketi á gólfi og þar er fataskápur.
Stofa og eldhús eru í björtu rými með gluggum til austurs út að Hafnarstrætinu. Í eldhúsi er ljós spónlögð innrétting með stæði fyrir ísskáp. Úr stofu er farið út á svalir til austurs.
Svefnherbergið er rúmgott og þar er parket á gólfi og fataskápar.
Baðherbergið er flísalagt, bæði gólf og veggir, ljós innrétting með tengi fyrir þvottavél og pláss bæði fyrir þvottavél og þurrkara undir bekkplötu. Sturta og upphengd wc.
Geymslan er rúmgóð og er á jarhæð hússins. Á jarðhæð er einnig sameiginleg vagna og hjólageymsla.


Annað
- Vel staðsett eign í miðbænum.
- Lyfta er í húsinu.
- Rúmgóð geymsla á jarðhæð.
- Útsýni út á Poll.
- Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.  Eignin hefur verið í útleigu frá byggingu og seljandi því með takmarkaðar upplýsingar um ástand eignarinnar.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 

Hvammur Eignamiðlun

Hvammur Eignamiðlun

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
19. des. 2013
10.400.000 kr.
862.050.000 kr.
4711.4 m²
182.971 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Hvammur Eignamiðlun

Hvammur Eignamiðlun

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone