Opið hús: Sambyggð 6, 815 Þorlákshöfn, Íbúð merkt: 01 03 03. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 13. maí 2025 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.
Lýsing
Um er að ræða bjarta og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á 3 hæð í góðu fjölbýlishúsi. Birt stærð samkvæmt fasteignaskrá HMS er 78,4 fm. Búið er að endyrnýja og lagfæra húsið mikið að utan.
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAX
Eignin skiptist í forstofu, stofa / borðstofu, tvö svefnherbergi, eldhús, baðherbergi og geymslu sem staðsett er á fyrstu hæð. Í sameign er sameiginlegt þvottahús, vagna- og hjólageymsla.
Nánari lýsing:
Forstofa: Komið er inn í forstofu með innbyggðum fataskáp, flísar á gólfi.
Eldhús: Inna af forstofu er gengið inn í flísalagt eldhús með innréttingu og eldhústækjum, ísskápur og uppþvottavél sem geta fylgt með, flísar milli skápa, borðkrókur og flísar á gólfi.
Stofa / borðstofa: Gengið er inn í bjarta og rúmgóða parketlagða stofu. Útgengt er út á suðvestursvalir sem búið er að þekja með timburflísum.
Hjónaherbergi: Rúmgott parketlagt herbergi, fataskápur, parket á gólfi.
Svefnherbergi: Gott svefnherbergi með innbyggðum fataskáp, parket á gólfi.
Baðherbergi: Með góðri innréttingu, sturtuklefa, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, flísalagt í hólf og gólf.
Geymsla: Í sameign er rúmgóð sérgeymsla með hillum.
Sameign: Í sameign er sameiginlegt þvottahús, vagna- og hjólageymsla.
Húsið: Sambyggð 6 - 8 er er byggð 1990. Í Sambyggð 6 eru sex íbúðir. Búið er að endurnýja húsið mikið að utan m.a. múrviðgerðir og málun á húsinu, skipt var um járn á þaki og rennur, endurnýja gluggar og gler.
Lóð: Sameiginleg gróin lóð, stétt að húsi og malbikuð bílastæði.
Að sögn eiganda er búið að endurnýja eftirfarandi í eigninni og húsinu:
Að innan:
* Nýjar innihurðir.
* Nýbúið er að mála eignina að innan.
* Nýlegt parket á stofu og svefnherbergjum.
Að utan:
* Múrviðgerðir og málun á húsinu 2023.
* Nýir gluggar og gler 2021.
* Skipt var um járn á þaki og rennur 2017.
Íbúðin getur afhenst strax eða skv. samkomulagi.
GÓÐ EIGN SEM VERT ER AÐ SKOÐA - TILVALIN FYRSTU KAUP - ER VEL STAÐSETT, STUTT ER Í SKÓLA, LEIKSKÓLA, ÍÞRÓTTAAÐSTÖÐU OG VERSLANIR.
Nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í síma 893 3276 eða holmar@helgafellfasteignasala.is.
Þorlákshöfn:
Þorlákshöfn er frábær staður til að búa sér notalegt heimili og ala upp börn. Vinalegur og barnvænn bær í nálægð við aðra þéttbýliskjarna. Í dag er öll þjónusta við barnafólk og fjölskyldur í Þorlákshöfn til fyrirmyndar. Stuttar vegalengdir einfalda allar samgöngur og börnin geta gengið örugg í skóla og tómstundastarf. Skólarnir eru eitt af trompum bæjarins þar sem stutt er vel við bakið á þeim sem þess þurfa. Rúmgóður og vel búinn grunnskóli með persónulegum samskiptum á milli heimilis og skóla. Leikskólinn Bergheimar er fimm deilda leikskóli fyrir tveggja til sex ára börn. Öll íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn er mjög góð og ákaflega vel nýtt af bæjarbúum. Margir nýir íbúar hafa nefnt að í stað þess að festa kaup á íbúð á höfuðborgarsvæðinu hafi verið hægt að fá íbúðarhús í Þorlákshöfn og búa fjölskyldunni stærra og rúmbetra heimili í barnvænu umhverfi.
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 79.980,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.