Opið hús: Laufengi 118, 112 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 02 04. Eignin verður sýnd mánudaginn 16. júní 2025 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Íbúðin skiptist í forstofu, hol, stofu, eldhús, baðherbergi, geymslu/þvottahús og fjögur svefnherbergi. Sólríkar suð-vestur svalir. Dýrahald er leyft í húsinu. Sérmerkt bílastæði fylgir íbúðinni.
Komið er um sérinngang af útisvölum á flísalagða forstofu með fataskáp til lofts. Af forstofu er dúklagt þvottahús/geymsla með glugga. Holið er parketlagt, samliggjandi við stofu og svefnherbergisgang. Baðherbergið er flísalagt, með sturtu, innréttingu, vegghengdu salerni og handklæðaofni. Í dag eru barnaherbergin þrjú, en búið er að skipta einu herbergi upp í tvö lítil svefnherbergi. Lítið mál er að breyta aftur í eitt stórt herbergi. Hjónaherbergið er parketlagt og með góðum fataskápum til lofts. Eldhúsið er flísalagt með fallegri innréttingu, flísum á milli efri- og neðri skápa, span helluborði og lögn fyrir uppþvottavél. Góður borðkrókur í eldhúsi. Stofan er rúmgóð og björt, parketlögð og með útgerngt á góðar og sólríkar suðursvalir.
Hleðslustöð er komin við bílastæðin.
Falleg eign með sérinngangi af svölum og sérmerktu bílastæði. Eignin er staðsett á eftirsóttum stað og í nálægð við alla helstu þjónustu.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður