Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Heiðar Pálsson
Árni Björn Kristjánsson
Helen Sigurðardóttir
Vista
fjölbýlishús

Frostafold 133

112 Reykjavík

79.900.000 kr.

663.071 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2041697

Fasteignamat

65.450.000 kr.

Brunabótamat

51.100.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1988
svg
120,5 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sérinngangur
svg
Hjólastólaaðgengi
svg
Bílastæði

Lýsing

Palsson Fasteignasala kynnir:

Falleg 3ja herbergja endaíbúð með sérinngangi, sólpalli og bílastæði í lokaðri bílageymslu.
Eignin er í hinu vinsæla Foldahverfi, Grafarvogi.

* Sólpallur til suðurs
* Bílastæði í lokaðri bílageymslu
* Gott aðgengi
* Rúmgóð svefnherbergi
* Parket endurnýjað 2022
* 2022-2023 var ytra byrði hússin yfirfarið, málað, gluggar endurnýjaðir að hluta og þak yfirfarið.


Nánari upplýsingar veita:
Páll Pálsson Lgf. í síma nr775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Samkv. Fasteignskrá Íslands er eignin skráð 120,50 m2 og fyrirhugað fasteignamat 2024 er 66.300.000 kr.

Eignin skiptist í forstofu, eldhús, borðstofu, stofu, 2 svefnherbergi, baðherbergi, geymslu og bílastæði.
Forstofa er flísalögð með fataskáp.
Eldhús og stofur eru í opnu flæði en borðstofa er afmörkuð með hálfum vegg. Parket á gólfi.
Eldhús er með góðri innréttingu frá HTH, AEG bakarofn í vinnuhæð og helluborð, vifta og flísar á milli skápa. Góður borðkrókur í borðstofu.
Stofan er rúmgóð og björt. Úr stofu er útgengt út á stóran lokaðan sólpall til suðurs. Sólpallurinn er um 25-30 m2.
Svefnherbergi 1 er rúmgott með glugga á tvo vegu og fataskáp. Parket á gólfi.
Svefnherbergi 2 er rúmgott með fataskáp og parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt og endurnýjað að mestum hluta með walk-in sturtu, góðri skápaeiningu fyrir þvottavél og þurrkara, wc og innréttingu.
Sérgeymsla er í sameign á jarðhæð

Sérbílastæði í lokaðri bílageymslu. Í bílageymslunni er aðstaða til bílaþvotta.
Einnig er sérmerkt bílastæði fyrir þessa íbúð ofan á bílageymslunni.

Björt og vel skipulögð eign með bílastæði í lokaðri bílageymslu, stutt er í skóla, leikskóla og alla aðra þjónustu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Pálsson Fasteignasala

Pálsson Fasteignasala

Borgartúni 3, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
14. sep. 2021
41.100.000 kr.
54.800.000 kr.
120.5 m²
454.772 kr.
17. júl. 2018
34.700.000 kr.
42.900.000 kr.
120.5 m²
356.017 kr.
18. sep. 2015
23.950.000 kr.
31.200.000 kr.
120.5 m²
258.921 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Pálsson Fasteignasala

Pálsson Fasteignasala

Borgartúni 3, 105 Reykjavík