Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2020
110,2 m²
2 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Bílastæði
Lyfta
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Rúmgóð og vönduð 110,2 fm þriggja herbergja íbúð með stæði i bílageymslu í nýlegu húsi á Hlíðarenda. Skjólgóður suðurpallur tilheyrir íbúðinni sem snýr inn í inngarðinn. Aukin lofthæð er í íbúðinni (280 cm) og gólfsíðir gluggar. Innréttingar og skápar úr svartbæsaðri eik frá JKE, tæki frá Miele og blöndunar- og hreinlætistæki frá Tengi. Lýsing er hönnuð af Lumex. Harðparket er á allri íbúðinni utan baðherbergis.Eignin telur eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu, geymslu og stæði í bílageymslu.
**Sækja söluyfirlit**
Nánari lýsing:
Forstofa: Harðparket á gólfi og stór fataskápur.
Eldhús: Falleg, svartbæsuð eikarinnrétting frá JKE. Vegleg eyja með helluborði og háfi. Ofn er í vinnuhæð og innbyggð uppþvottavél. Quartzsteinn á borðum. Eldhús er opið við stofu.
Stofa: Björt og rúmgóð með gólfsíðum gluggum og frönskum svölum.
Baðherbergi: Falleg, svartbæsuð eikarinnrétting frá JKE og quartzsteini á borði. Flísalagt í hólf og gólf með upphengdu salerni og stórri walk-in sturtu. Góð þvottaaðstaða er staðsett inni á baðherbergi.
Hjónaherbergi: Mjög rúmgott með góðu skápaplássi, gólfsíðum gluggum og útgengi á hellulagða, skjólgóða suðurverönd sem snýr inn í inngarðinn.
Herbergi: Einnig rúmgott með góðu skápaplássi og gólfsíðum gluggum.
Geymsla: Rúmgóð 14,1 fm geymsla fylgir íbúð í kjallara.
Bílageymsla: Stæði fylgir íbúð í lokaðri bílageymslu.
Sameign: Öll hin snyrtilegasta með lokuðum inngarði.
Nánari upplýsingar:
Lilja Guðmundsdóttir löggiltur fasteignasali s. 649-3868 eða lilja@eignamidlun.is
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
12. maí. 2022
60.800.000 kr.
87.990.000 kr.
110.2 m²
798.457 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025