Lýsing
Til sölu 93,9 fm. íbúð að Kirkjuteig 5. Búið er að skipta íbúðinni upp í tvær tveggja herbergja íbúðir sem báðar eru í útleigu. Íbúðirnar hafa verið endurnýjaðar að talsverðu leyti.
Gengið er inn í báðar íbúðirnar í kjallara hússins, en þar er einnig sameiginlegt þvottahús. Stór grasgróin lóð er í kringum húsið. Næg bílastæði við götu.
Skipting eignar: Íbúð 001: Anddyri, baðherbergi, eldhús, stofa, svefnherbergi, geymsla undir stiga. Íbúð 002: Anddyri, geymsla upp stiga, eldhús, gangur, baðherbergi, geymsla, svefnherbergi, stofa.
Nánari lýsing:
Íbúð 001 skiptist í forstofu/hol með parket á gólfi og skáp. Baðherbergi með flísum á gólfi og nýlegri innréttingu. Eldhús með nýlegri eldhúsinnréttingu og dúk á gólfi. Stofa með harðparketi og svefnherbergi með harðparketi.
Íbúð 002 skiptist í forstofu, eldhús með eldri innréttingu, baðherbergi með flísum á gólfi og nýlegri baðinnréttingu, lítið svefnherbergi, og stofu. Rúmgóð geymsla er inn af baðherbergi og önnur lítil geymsla er við forstofu. Nýtt harðparket er á íbúðinni.
Gólfefni: parket, dúkur og flísar.
Kirkjuteigur 5 er fimm íbúða fjölbýlishús á tveimur hæðum auk kjallara.
Húsgrunnur og gluggar á 1. hæð málaðir að utan fyrir ca þremur árum.
Í kjallara er sameiginlegt þvottahús, hver með sína vél.
Klæðning hússins endurnýjuð fyrir c.a. 12 árum.
Gluggakarmar hafa verið lagfærðir.
Skólp endurnýjað 2015.
Drenað í kringum húsið 2015."
Lóð hússins er stór og möguleiki er á að selja hluta hennar undir byggingu nýrrar fasteignar. Borist hefur tilboð þess efnis og hafa viðræður áður átt sér stað. Nánari upplýsingar um þetta má fá hjá fasteignasölu.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður