Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Óskar Sigurðsson
Þorsteinn Magnússon
Vista
atvinnuhúsnæði

Austurvegur 2

860 Hvolsvöllur

210.000.000 kr.

889.831 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2194725

Fasteignamat

51.650.000 kr.

Brunabótamat

112.600.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1943
svg
236 m²
svg
9 herb.
svg
4 baðherb.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

ÁRBORGIR FASTEIGNASALA 4824800 kynnir í sölu:

Eldstó Art Café á Hvolsvelli.
Fjölskyldurekinn veitingastaður, kaffihús og leirlistagallerí á góðum stað við þjóðveg 1. Um er að ræða gistiheimili og veitingahús í sama húsnæði.
Eignin er samtals 362,2 fm og er á tveimur fastanúmerum. Húsið er steypt og klætt með steni og hefur húsið hefur fengið gott viðhald á síðustu árum. Veitingahúsið er á jarðhæð og er með snyrtilegri móttöku, tveimur aðskildum veitingasölum og tvö salerni. Vönduð gólfefni og inn af öðrum salnum er verslun með leirvörum og fl. 
Nýlegt eldhús með góðum tækjum, meðal annars tveir Rational 6 skúffu gastroofn með gufu. Eldunarlína frá Fastus, Broiler, steikarpanna, rafmagnseldavél og 3ja metra breiður Ítalskur háfur/loftræsikerfi. Uppþvottavél,  vinnuborð með stálvask og fl sbr. tækjalista. 
Öll tæki eru í góðu ástandi og viðhaldið. Handunnið leirtau að hluta.
 
Gistiheimili er staðsett á annarri hæð og er inngangur þess á bakvið hús. Athugið gistiheimilið er ekki í rekstri og er nýtt núna fyrir starfsfólk. Þar er búið að endurnýjað töluvert m.a. Gólfefni, bæði raflagnir og pípulagnir nýjar frá 2012 - en þá var allt uppi í risi endurbyggt að innanverðu og skipt út gluggum  á austur og vestur gaflinum, en þeir eru allir með neyðaropnun. Öll herbergi eru með eldvarnarhurð og er eldvarnarhurð milli gistiheimilis og veitingastaðar.  Gangur er teppalagður og eru þrjú herbergi með tvíbreiðum rúmum og eitt með svefnplássi fyrir allt að þrjá. Vel útbúin herbergi með góðum rúmum. Tvö sameiginleg baðherbergi með sturtum eru á hæðinni, ný síðan risið var endurbyggt.  Sameiginleg setustofa/eldhús fyrir gesti.
 
Kjallari: Í kjallara eru 5 geymslur (lager-aðstaða) , þvottahús, tvö stór svefnherbergi og eldhús.  
 
Lóðin er eignalóð 1564,0 m² og eru 70% í eigu Eldstóar og 30% í eigu Mílu. Allt umhverfi er snyrtilegt, búið að helluleggja stóran hluta lóðarinnar, þar sem að falleg stór blómaker eru og útiborð - sem geta tekið fleiri gesti. Eldstó Art Café hefur háa einkunn á Google og TripAdvisor, enda vinsældir staðarins aukist stöðuglega, verðmæti sem að hafa byggst upp á þeim 18 árum sem að Eldstó Art Café hefur verið á Hvolsvelli. 
 
Öll rekstarleyfi eru til staðar.
Fyrirtæki með góða sögu og býður uppá mikla möguleika fyrir hugmyndaríkt fólk.

Nánari upplýsingar á skrifstofu Árborga
arborgir@arborgir.is

Árborgir fasteignasala

Árborgir fasteignasala

Austurvegi 6, 800 Selfossi.
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
19. des. 2017
23.750.000 kr.
50.000.000 kr.
236 m²
211.864 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Árborgir fasteignasala

Árborgir fasteignasala

Austurvegi 6, 800 Selfossi.
phone