Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Heimir Hafsteinn Eðvarðsson
Árni Björn Erlingsson
Vista
lóð

Vatnsendahlíð 216

311 Borgarnes

3.900.000 kr.

714 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2333708

Fasteignamat

2.540.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
5462 m²
svg
0 herb.

Lýsing

Jón Smári Einarsson lgf. s. 8606400 og Fasteignaland kynna sumarhúsalóðina Vatnsendahlíð 216, 311 Borgarbyggð, í landi Vatnsenda í Skorradal, nánar tiltekið eign merkt 00-00, fastanúmer 233-3708 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Lýsing: Um er að ræða 5.852 fm leigulóð við Vatnsendahlíð 216 á kjarri vaxinni lóð með fallegu útsýni yfir Skorradalsvatn. 
Kalt vatn og rafmagn komið að lóðarmörkum. 
Góð aðkoma er frá Skorradalsvegi. Malbikað er alla leið að afleggjara að lóðinni.
Lóðarleigusamningur er til 20 ára í senn og er bundinn vísitölu. Leiguverð er í ár (2025) um kr. 225.000 á ári.
Skilyrði er fyrir þátttöku í félagi allra frístundahúsaeigenda á svæðinu en árgjald er um kr. 20.000 á ári.

Eignin Vatnsendahlíð 216 er skráð sem hér segir hjá HMS: Eign 233-3708, birt stærð 5.462,0 fm.

Staðsetning og nærumhverfi:
Í nærumhverfi er baðstaðurinn Krauma, Bifröst, Hraunfossar, Reykholt, Húsafell, Borgarnes og því stutt að fara í alla helstu þjónustu, sund, golf o.fl. og því hægt að fara í skemmtilegar í dagsferðir í nágrenninu.
Lóðin er í u.þ.b. klukkutíma akstri frá Reyjavík
Leiðarlýsing:  Frá Reykjavík er ekið í átt að Borgarnesi og beygt til hægri áður en komið er að brúnni við Borgarnes inn á Borgarfjarðarbraut (þjóðvegur 50). Ekið er áfram þangað til komið er að hægri beygju inn á Skorradalsveg (Þjóðvegur 508). Keyrt er í ca. 10 mínútur og er þá lóðin þar á vinstri hönd.

Nánari upplýsingar veitir:
Jón Smári Einarsson
Löggiltur fasteignasali / MPM, viðskiptafræðingur.
jonsmari@fasteignaland.is
860-6400

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignaland fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup á íbúðarhúsnæði) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900 . 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.


 

Fasteignaland ehf

Fasteignaland ehf

Skeifunni 2, 108 Reykjavík.
Fasteignaland ehf

Fasteignaland ehf

Skeifunni 2, 108 Reykjavík.