Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1976
144,1 m²
4 herb.
1 baðherb.
3 svefnh.
Þvottahús
Bílskúr
Sameiginl. inngangur
Lýsing
Valfell fasteignamiðlun og ráðgjöf sími 570-4824.
Endaíbúð á 1 hæð auk bílskúrs, suðursvalir og sérþvottahús innan íbúðar. Íbúðin er laus strax.Björt og velskipulögð og mikið endurnýjuð 4ra herbergja endaíbúð á 1. hæð auk 31,6 fm endabílskúrs og stórri 20,9 fm sérgeymslu í kjallara. Þrjú svefnherbergi innan íbúðar, gott opið skápapláss í hjónaherbergi. Þvottahús innan íbúðar. Baðherbergi flísalagt, sturta og innrétting á baði.
Eldhús með fallegri hvítri innréttingu, borðkrókur og tengi fyrir uppþvottavél. Stofan er stór og rúmgóð, nýtist einnig sem borðstofa, úr stofu er gengið út á suðursvalir.
Í kjallara er stór 20,9 fm sérgeymsla/aukaherbergi með glugga og aðgangi að sameiginlegri snyrtingu.
Bílskúrinn er í enda, með rafmagni, hita og köldu vatni, fjarstýring á hurð. Íbúðin er nýmáluð og laus við undirritun kaupsamnings.
Endurbætur í íbúð:
Eldhúsinnrétting 2019,
gólfefni íbúðar 2016,
baðherbergi endurnýjað og flísalagt, neysluvatnslagnir 2016,
innihurðir 2023.
rofar og tenglar ásamt rafmagnstöflu íbúðar og sameignar endurnýjuð.
Endurbætur við sameign á liðnum árum:
Gler/glugga að hluta, opnanlegir gluggar endurn. (nema í stofu).
Þakjárn og þakkantur endurnýjað 2005.
Hús sprunguviðgert að utan 2016.
Stofnlagnir endurnýjaðar.
Flasning við skorstein á Skarðsbraut nr. 9 var endurnýjuð og þétt í kringum hann 2023.
Neysluvatnslagnir í kjallara endurnýjaðar 2005 og lagnir upp í hverja íbúð endurnýjaðar ca.2014,
Varmaskiptir endurnýjaður 2016.
Drenlögn endurnýjuð 2015. (suður, austur og vesturhlið).
Stigahús málað og stigi teppalagður ca. 2015.
Dyrasímar og póstkassar í sameign endurnýjað ca. 2018.
Útidyrahurðir endurnýjaðar í sameign og gler í sameign 2021
Allar nánari uppl. veitir Hákon á hakon@valfell.is
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
7. júl. 2023
46.700.000 kr.
52.000.000 kr.
144.1 m²
360.861 kr.
4. okt. 2016
17.950.000 kr.
23.200.000 kr.
144.1 m²
160.999 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025