Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Maack Gunnarsson
Svanþór Einarsson
Theodór Emil Karlsson
Steingrímur Benediktsson
Vista
raðhús

Stórikriki 46

270 Mosfellsbær

152.500.000 kr.

649.489 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2310036

Fasteignamat

131.750.000 kr.

Brunabótamat

96.670.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2008
svg
234,8 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

** Opið hús þriðjudaginn 18.mars frá kl. 16:30 til 17:00 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Mjög fallegt raðhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr við Stórakrika 46 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 234,8 m2, þar af raðhús 207,8 m2 og bílskúr 27 m2. Eignin skiptist í fjögur rúmgóð svefnherbergi, tvö baðherbergi, hol/vinnuhol, fjölskyldurými/sjónvarpshol, forstofu, eldhús, borðstofu, stofu og bílskúr. Vinsæl staðsetning miðsvæðis í Mosfellsbæ. Stutt í skóla, verslun og alla helstu þjónustu. Mjög rúmgóð svefnherbergi og stofur. Gott skipulag. Fallegar innréttingar og gólfefni. Svalir með fallegu útsýni. Bakgarður með tveimur timburveröndum, geymsluskúr og grasi. Steypt bílaplan og timburverönd í suðurátt. Búið er að setja upp þriggja fasa bílahleðslustöð sem fylgir.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.

Nánari lýsing:

Efri hæð:
Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp. Úr forstofu er innangengt í bílskúr.
Baðherbergi 1 er flísalagt baðherbergi með innréttingu og sturtu.
Stofa er í opnu og björtu rými með innfelldri lýsingu og parketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á stórar svalir með glæsilegu útsýni
Eldhús er með flísum á gólfi og innréttingu með eyju. Í innréttingu eru ísskápur og frystiskápur sem fylgja, uppþvottavél sem fylgir, spanhelluborð og blástursofn. Úr eldhúsi er gengið út á timburverönd í suðurátt.
Svefnherbergi 1 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Bílskúr er með hillum, skápum og flísum á gólfi. Nýlega var skipt um bílskúrshurð og sett upp þriggja fasa bílahleðslustöð.
 
Neðri hæð:
Komið er inn í hol/vinnuhol með parketi á gólfi. Úr holi er gengið inn í stórt fjölskyldurými/sjónvarpshol með parketi á gólfi. Geymslurými er undir stiga.
Þvottahús er með innréttingu og flísum á gólfi. Gert er ráð fyrir þvottavélum og þurrkara í vinnuhæð.
Baðherbergi 2 er flísalagt baðherbergi með innréttingu, baðkari og sturtu.
Svefnherbergi 2 er með fataskáp og parketi á gólfi. Úr svefnherbergi er útgengi á timburverönd og bakgarð.
Svefnherbergi 3 er með fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi 4 er með fataskáp og parketi á gólfi.

Verð kr. 152.500.000,-   
 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

img
Svanþór Einarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Mosfellsbæjar
Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone
img

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
23. jan. 2024
131.550.000 kr.
137.900.000 kr.
234.8 m²
587.308 kr.
1. nóv. 2012
26.350.000 kr.
24.500.000 kr.
219.3 m²
111.719 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ