Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Borga Harðardóttir
Þyrí Guðjónsdóttir
Vista
einbýlishús

HRAUNBÆR B

810 Hveragerði

109.700.000 kr.

566.340 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2243693

Fasteignamat

97.100.000 kr.

Brunabótamat

106.300.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1999
svg
193,7 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

VALBORG fasteignasala kynnir í einkasölu Hraunbæ B, 810 Hveragerði.
Stórt og bjart fjögurra herbergja einbýlishús með afgirtri timburverönd, heitum potti ásamt tvöföldum bílskúr.
Bílaplan er hellulagt en það er mjög stórt og rúmar margar bifreiðar.
Eignin er samtals 193,7 m² að stærð samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.
Íbúðin er 129,5 m² og telur forstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, stofu/borðstofu, baðherbergi, þvottahús og geymslu.
Bílskúrinn er tvöfaldur, skráður 64,2 m² en í enda hans er geymsluherbergi. Þar er einnig nýtt wc og handlaug með skápaplássi.
Útgengt er frá stofu og einnig frá hjónaherbergi út á afgirta timburverönd þar sem er heitur pottur.
Eignin er með nýju gólfefni og einnig er hún nýmáluð. Þá voru ofnar yfirfarnir og hluti af þeim endurnýjaðir.
Ný innrétting er í þvottahúsi. Lóðin er 1251,0 m² að stærð.
** Fasteignamat 2026 er áætlað kr. 108.150.000 **

Nánari upplýsingar veita:
Elínborg María Ólafsdóttir, lgf, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.
Gunnar Biering Agnarsson, lgf, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is.


Sjá staðsetningu hér:

Nánari lýsing:
Anddyri: með flísum á gólfi og þar er góður fataskápur.
Baðherbergi: flísalagt í hólf og gólf. Þar er innrétting með handlaug, skápum og skúffum, upphengt wc, "walk-in" sturtu. Þar er innrétting með skúffum og handlaug, einföld skápaeining, walk-in sturta og handklæðaofn.
Hjónaherbergi: er með fjórföldum fataskáp og útgengt út á afgirta timburverönd með heitum potti. Parket á gólfi.
Svefnherbergi I: gluggi til suð-vesturs. Parket á gólfi.
Svefnherbergi II: gluggi til norðurs. Parket á gólfi.
Stofa: er björt með gluggum í þrjár áttir, upptekin loft og útgengt út á aflokaða timburverönd. Þar er heitur pottur. 
Eldhús: er opið og bjart með eldri innréttingu, efri og neðri skápum og skúffum, ofn í vinnuhæð, eldhúseyja með helluborði, innbyggður ísskápur/frysti og einnig innbyggð uppþvottavél.
Bílskúr: er tæplega 65m². Hann er tvöfaldur og hátt til lofts. Þar er búið að koma fyrir geymslulofti en einnig er þar geymsluherbergi og lítið baðherbergi með wc og handlaug. Gólf á bílskúr er vélslípað með lit í.
Þvottahús tengir íbúð og bílskúr saman. Þar er ný innrétting með skolvaski og góðu skápaplássi. Í þvottahúsi er lúga uppá háaloft.
Lóðin er 1.251 m² 

Nánari upplýsingar veita:
Elínborg María Ólafsdóttir, lgf, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.
Gunnar Biering Agnarsson, lgf, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Valborg fasteignasala

Valborg fasteignasala

Nóatún 17, 105 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
24. okt. 2023
86.400.000 kr.
89.000.000 kr.
193.7 m²
459.473 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Valborg fasteignasala

Valborg fasteignasala

Nóatún 17, 105 Reykjavík
phone