Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Borga Harðardóttir
Þyrí Guðjónsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Miðhús 44

112 Reykjavík

129.900.000 kr.

613.604 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2041275

Fasteignamat

115.600.000 kr.

Brunabótamat

102.460.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1991
svg
211,7 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
Opið hús: 14. maí 2025 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Miðhús 44, 112 Reykjavík, efri sérhæð. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 14. maí 2025 kl. 17 - 17:30.

Lýsing

Valborg fasteignasala kynnir glæsilega, bjarta, og mjög rúmgóða 211,7 fm 6 herbergja efri sérhæð í tvíbýlishúsi við Miðhús 44 í Grafarvogi. Íbúðin á efri hæð er 141,4 fm og skiptist í forstofu, stofu, borðstofu, sólstofu, sjónvarpshol, eldhús, þrjú svefnherbergi og baðherbergi.  Bílskúr er 25,9 fm.  Hátt til lofts og inngangur í götuhæð.  Á neðri hæð er sérinngangur í 44,4 fm íbúðarrými með svefnherbergi, þvottaherbergi, baðherbergi og geymslurými.  Hentar vel til útleigu.

Nánari lýsing efri hæðar:
Stofa og borðstofa með parketi, hvíttuðum hlyn í lofti með innfelldri lýsingu.  Þaðan farið út í sólstofu. Útsýni að hluta yfir borgina og til fjalla.
Sólstofa er flísalögð með gólfhita og innfelldri lýsingu í lofti, þaðan farið út á opnar svalir.
Sjónvarpsstofa innaf forstofu er aðskilin frá stofu með frístandandi millivegg.
Eldhús með góðu skápaplássi, nýlegum ofni og örbylgjuofni og parketi á gólfi.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, innréttingu, glugga, sturtu og baðkari.
Svefnherbergisgangur með parketi.
Hjónaherbergi með dúk á gólfi, fataskáp og glugga í tvær áttir.
Svefnherbergi 1 með dúk á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 2 með parketi á gólfi.
Forstofa með náttúruflísum á gólfi og góðum fataskáp.

Nánari lýsing neðri hæðar:
Sérinngangur er í íbúðarrýmið að austan en einnig er innangengt frá svefnherbergisgangi.  Íbúðin skiptist í andyri/geymslu, svefnherbergi, þvottaherbergi og baðherbergi.  Íbúðin er með flísum á gólfi.  Gólfhiti í öllu rýminu.  Hægt er að koma fyrir eldhúsi þar sem nú er þvottaherbergi og þá hentar einingin vel til útleigu.

Húsið er tvíbýlishús og hefur fengið gott reglulegt viðhald í gegnum árin og lítur vel út.  Snjóbræðsla fyrir framan hús nær yfir bílastæði framan bílskúrs, framan anddyris til og með stétt að götu fyrir framan eldhúsglugga.
Helstu viðhald og endurbætur síðustu ár er eftirfarandi:
2005 byggt yfir svalir, efni og vinna frá Gluggar og garðhús.
2009 gerður nýr eignaskiptasamningur.
2009-2010 Innréttað rými í kjallara - herbergi, geymsla, þvottahús, snyrting – gerður stigi milli hæða.
2019 þak lagfært menjað og málað, gluggar og þakkantur málaður.
2020 sett nýtt gler í neðri hluta glugga á suðurhlið hæðarinnar og einn í efri hluta, alls 19 rúður.
2022 útveggir regnvarðir.
2024-2025 Gert við þakkant hússins og gluggar og gler endurnýjað að hluta.

Hafið samband og bókið skoðun.  Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Steinþórsson löggiltur fasteignasali - viðskiptafræðingur í síma 896-5865, tölvupóstur alli@valborgfs.is.

Valborg fasteignasala

Valborg fasteignasala

Nóatún 17, 105 Reykjavík
phone
Valborg fasteignasala

Valborg fasteignasala

Nóatún 17, 105 Reykjavík
phone