Lýsing
Miklaborg kynnir: Ný og glæsileg 3-4ra herbergja íbúð með sér inngangi á efri hæð á frábærum útsýnisstað á Grundarfirði. Stórar stofur með frábæru útsýni, hjónasvíta, tvö baðherbergi og þrennar svalir. Íbúðin er mjög björt, gluggar á öllum hliðum. Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.
Nánari lýsing:
Inngangur: Gengið er upp tröppur að sérinngangi íbúðar, þar eru góðar svalir sem nýtast íbúðinni vel.
Forstofa: Rúmgóð með fataskáp.
Alrými / stofa: Mjög rúmgott og bjart stofurými með fallegu útsýni yfir sjóinn og til fjalla, útgengt er á góðar svalir.
Eldhús: Opið við stofurýmið, þar er falleg sérsmíðuð hvít innrétting, veggföst eldunareyja og innbyggð tæki.
Hjónaálma: Glæsileg með sér flísalögðu baðherbergi, fataherbergi og útgengi á sér svalir.
Svefnherbergi: Rúmgott herbergi. Mögulegt er að stúka þriðja svefnherbergið af innaf alrýminu.
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með góðri innréttingu og sturtu.
Þvottahús: Sér innan íbúðar.
Íbúðin er fullbúin án aðal gólfefna, eftir er að setja upp innihurðir en þær eru á staðnum og fylgja með í kaupunum.
Húsið er forsteypt, byggingarár er 2022. Íbúðin er laus til afhendingar við kaupsamning.
Þetta er ný falleg og vel skipulögð eign á einstökum útsýnisstað við sjóinn.
Nánari upplýsingar veitir:
Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali í síma 8970634 eða throstur@miklaborg.is