Lýsing
Miklaborg kynnir: Glæsileg útsýnisíbúð á 6. hæð. Tækifæri til að tryggja sér íbúð í einu glæsilegasta fjölbýlishúsi höfuðborgarsvæðisins. Metnaðarfull hönnun á frábærum útsýnisstað í Vesturbæ Reykjavíkur. Húsið er staðsett örstutt frá verslun og þjónustu og í 10-15 mín. göngufæri frá miðbæ Reykjavíkur. Íbúðirnar í Vesturvin 3 eru til afhendingar í október/nóvember 2025.
Nánari upplýsingar veitir Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali í síma 8970634 eða throstur@miklaborg.is
Íbúð 602 er glæsileg íbúð á 6. hæð en þar er frábært útsýni í allar áttir. Íbúðarrýmið skiptist meðal annars í stórar og bjartar stofur með opnu eldhúsi sem er með eldunareyju . Þrjú svefnherbergi eru í íbúðinni og þar af hjónaherbergi með fataskáp og sér baðherbergi. Gestasnyrting og Þvottaherbergi eru á hæðinni. Íbúðinni fylgja tvennar svalir sem eru báðar samtals 25,3 m2. Tengi fyrir heitum potti er á svölum. íbúðin er skráð 160,4 m2 með geymslu sem er 14,1 m2. Íbúðinni fylgja tvö bílastæði í lokaðri bílgeymslu merkt nr. B121 og B122 og einnig sérgeymsla í sameign merkt 3-0005. Íbúðirnar afhendast með hágæða ítölskum innréttingum og er hönnunarþema þessarar íbúðar Blámi. Vönduð tæki frá Miele og Siemens. Steinborðplötur og gólfsíðir gluggar. Allar íbúðir eru með gólfhita.
Nánar um verkefnið hér á heimasíðu þess HÉR.
Nánari upplýsingar veitir Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali í síma 8970634 eða throstur@miklaborg.is