Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Björn Guðmundsson
Berglind Jónasardóttir
Greta Huld Mellado
Vista
einbýlishús

Aðalstræti 76

600 Akureyri

104.000.000 kr.

464.493 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2144709

Fasteignamat

99.100.000 kr.

Brunabótamat

93.800.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1982
svg
223,9 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Útsýni

Lýsing

    

Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala

Aðalstræti 76 

**Seld með fyrirvara**

Virkilega skemmtilega staðsett einbýlishús á tveimur hæðum, jarðhæð og ris ásamt stakstæðum bílskúr í innbænum á Akureyri. Húsið er byggt árið 1982 og stendur aðeins fyrir ofan götuna og er keyrt að því upp að bílskúrnum þar sem eru tvö bílastæði. Útsýni til austurs úr húsinu er glæsilegt og lóð er gróin. Jarðhæð er skráð 120,8 fm, ris 73,1 fm. en gólfflötur er stærri og bílskúr er skráður 30 fm. Samtals er því eignin 223,9 fm. og byggt úr timbri á steyptum grunni. 


Eignin skiptist í forstofu, tvö baðherbergi, tvær stofur, hol, eldhús, þvottahús, tvær geymslur á jarðhæð, fjögur svefnherbergi og bílskúr ásamt útigeymslu og kartöflugeymslu. 

Komið er inn í forstofu þar sem eru flísar á gólfi og opið fatahengi. Við hlið þess er baðherbergi sem hefur verið endurnýjað með sturtu, handklæðaofni og innréttingu í kringum vask. Eitt svefnherbergi er við hlið stofu með léttum veggjum og því væri hægt að stækka stofu sem er þó björt og rúmgóð. Inn af bæði stofu og eldhúsi er borðstofa. Eldhús er með góðri ljósri U-innréttingu og borðkrók, korkur á gólfi. Inn af eldhúsi er þvottahús og tvær geymslur auk þess sem annar inngangur er inn í þvottahús. 

Á efri hæð eru öll rými undir súð að hluta, þrjú svefnherbergi, eitt þeirra langt um stærst og er það með svölum til suðurs. Parket er á öllum herbergjum. Baðherbergi efri hæðar er með flísar á gólfi, frístandandi baðkari og innréttingu í kringum vask.

Bílskúr er stakstæður, þar er góð rafmagnsdrifin innkeyrsluhurð ásamt inngönguhurð og gólf er ómálað.

Geymsla er undir stétt að inngangi að hluta en þar vantar betri öndun og rakaummerki eru auðsjáanleg á útveggjum. Kartöflugeymsla með ágætri loftun er svo austan við geymsluna með inngangi í brekkunni.  

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila.    (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 


Frekari upplýsingar:
bjorn@byggd.is
greta@byggd.is
berglind@byggd.is
olafur@byggd.is

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 


 

Byggð fasteignasala

Byggð fasteignasala

Skipagata 16, 600 Akureyri
phone
Byggð fasteignasala

Byggð fasteignasala

Skipagata 16, 600 Akureyri
phone