Lýsing
Miklaborg kynnir: Falleg og björt kjallaraíbúð með sérinngangi og gluggum á þrjár hliðar. Góð lofthæð. Forstofa, rúmgóð stofa með gluggum á tvo vegu. Svefnherbergi og lokað eldhús. Harðparket er á gólfum Drjúg geymsla undir tröppum í sameign sem er 9.1 fm að grunnfleti, en 1,4 fm að birtu flatarmáli. Allar nánari upplýsingar gefur Viðar Böðvarsson, viðskiptafræðingur og lögg. fast. s. 694-1401
Gengið er inn um sérinngang á hlið hússins. Fyrst er lítil forstofa. Úr henni er á vinstri hönd gengið í rúmgóða bjarta stofu. Næst er baðherbergi með sturtu, handklæðaofni og opnanlegum glugga. Eldhúsið er með ræstiskáp og fínu vinnurými. Svefnherbergið er rúmgott og þaðan er gengið út í sameign þar sem mjög drjúg geymsla tilheyrir íbúðinni. Hún er undir tröppum með og er 9,1 fm að grunnfleti og birt flatrmál er 1,4 m2. Einnig er í snyrtilegri sameigninni þvottahús og hjólageymsla. Á undanförnum árum hafa átt sér stað umfangsmiklar framkvæmdir á húsinu, nú síðast við glugga, þak og útveggi. Afar skemmtileg eign á þessum vinsæla stað. Allar nánari uplýsingar gefur Viðar Böðvarsson, viðskiptafræðingur og lögg. fast. s. 694-1401