Lýsing
Miklaborg kynnir: 2,8 hektara eignarland í landi Litla Hofs sem staðsett er við Eystri Rangá í Rangárþingi ytra og deiliskipulagt sem íbúðarbyggð en leyfi fyrir gistirekstrarþjónustu er mögulegt. Vegalengd frá Reykjavík er 96 km og malbik alla leið. Ekið er beina leið á þjóðveg eitt (90 km) og síðan er beygt til vinstri inn á Keldnaveg númer 264, (sem er til móts við Hótel Rangá) þaðan er 6 km spotti að Litla Hofi. Víðsýnt og ægifagurt útsýni m.a. til Heklu og Tindafjallajökuls.
Hér má sjá deiliskipulag fyrir Litla-Hof Stutt er í alla þjónustu á Hellu eða Hvolsvelli. Matvöruverslanir, sundlaugar, læknisþjónusta, vínbúð, byggingavöruverslanir og veitingastaðir. Hella er 14 km frá og Hvolsvöllur er 11 km frá Litla Hofi. Golfvöllur er á Strönd, 8 km frá Litla Hofi. Helstu náttúruperlur sem eru nálægar eru til að mynda Fjallabak, Hekla, Tindfjallajökull, Þórsmörk o.fl. Íbúðarlóðirnar eru eignarlönd en hægt er að sækja um lögbýli. Lóðirnar eru stórar og þar af leiðandi er byggingarmagn mikið. Byggja má allt að 350 fm einbýli, 120 fm gestahús, 120 fm bílskúr/vinnuskúr og 40 fm garðhús/áhaldahús. Byggingarleyfi fæst í samráði við viðkomandi sveitarfélag. Seljandi skilar vegi, köldu vatni, rafmagni og ljósleiðarararöri að lóðamörkum.
Nánari upplýsingar veitir: Jón Rafn löggiltur fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is