Lýsing
Björt og rúmgóð 4ra herbergja íbúð á 2. hæð við Grænásbraut í Reykjanesbæ. Nýlega hefur verið lagt parket á íbúðina. Eignin er laus við kaupsamning.
Íbúðirnar eru á Ásbrú sem er ört stækkandi samfélag á Suðurnesjum og stutt er í alla þjónustu og skóla. Einungis er um 30-40 mínútna akstur frá Reykjavík.
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 142,7fm. og þar af er geymsla skráð 8,1fm.
Eignin skiptist í stofu/borðstofu í opnu rými, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.
Nánari lýsing:
Anddyri með góðu skápaplássi og flísar á gólfi.
Stofa/borðstofa björt og rúmgóð með parketi á gólfi.
Eldhús með synrtilegri innréttingu og efriskápum sem ná upp í loft, flísar á milli skápa, ofn, gufugleympi og parketi á gólfi. Útgengi úr eldhúsi í stigahús í sameign.
Hjónaherbergi rúmgott með góðu skápaplássi og parketi á gólfi.
Svefnherbergi I rúmgott með góðu skápaplássi og parketi á gólfi.
Svefnherbergi II rúmgott með góðu skápaplássi og parketi á gólfi.
Baðherbergi með baðkari með sturtuaðstöðu, salerni, snyrtilegri innréttingu og dúkur á gólfi.
Baðherbergi II er innan af hjónaherbergi, með baðkari og sturtuaðstöðu, slerni, innréttingu og dúkur á gólfi.
Þvotthús með hillum og dúkur á gólfi.
Geymsla er í sameign hússins.
Aðkoman að húsinu er góð. Aðgengi er að bílastæðum fyrir utan húsið og sameiginleg lóð.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899-5949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.