Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Finnbogi Hilmarsson
Gunnlaugur A. Björnsson
Brynjólfur Snorrason
Ragnar Þorgeirsson
Sigríður Lind Eyglóardóttir
Ásdís Írena Sigurðardóttir
Elsa Björg Þórólfsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Skúlagata 20

101 Reykjavík

73.500.000 kr.

832.390 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2231942

Fasteignamat

73.500.000 kr.

Brunabótamat

47.950.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1997
svg
88,3 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Hjólastólaaðgengi
svg
Lyfta
svg
Laus strax
svg
Heldri borgarar

Lýsing

Heimili fasteignasala og Sigríður Lind fasteignasali kynna í einkasölu fallega og rúmgóða 88,3 fm, þriggja herbergja íbúð á annarri hæð (0206) með sólríkum, yfirbyggðum svölum í góðu lyftuhúsi við Skúlagötu 20.  Húsvörður er í húsinu.  Í húsinu við hliðina rekur Reykjavíkurborg þjónustu fyrir eldri borgara og þar er í boði m.a. matur og ýmiskonar félagsstarf.  

** Bókið skoðun hjá sigridur.lind@heimili.is eða í síma 8994703 **

Nánari lýsing eignar:
Komið er  inn í forstofu/hol um snyrtilega sameign, parketi á gólfi og góður fataskápur. Á vinstri hönd í forstofu er stærra svefnherbergið sem er með parketi á gólfi, góðum fataskápum og glugga til suðurs.
Borðstofa og stofa eru samliggjandi þvert í gegnum íbúðina (frá norðri til suðurs) og eru með parketi á gólfi. Útgengi á góðar yfirbyggðar svalir til suðurs úr stofunni. Í borðstofu eru góðir gluggar til norðurs þar sem njóta má njóta stórkostlegs útsýnis m.a yfir sundin blá og að Esju.
Eldhús er opið við borðstofu og er með ágætri eldri innréttingu, opnanlegum glugga og parketi á gólfi. Inn af eldhúsi er minna svefnherbergið með fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi er með flísum á veggjum og dúk á gólfi, rúmgóður sturtuklefi og snyrtileg innrétting. Stæði fyrir þvottavél á baðherbergi.  Eigninni fylgir sér 4,8 fm geymsla í sameign.

Góð aðkoma er að húsinu Lindargötumegin og eru bílastæði þar fyrir íbúa sem og rafhleðslustæði.  Í húsi við hliðina, Lindargötu 59, rekur Reykjavíkurborg þjónustu fyrir eldri borgara. Örfáir metrar eru milli húsanna. Þar má finna ýmsa þjónustu í boði, meðal annars fjölbreytt félagsstörf og matur, sjá nánar á síðu Reykjavíkurborgar https://reykjavik.is/lindargata-59

Íbúðina má eingöngu selja félagsmönnum í Félagi eldri borgara og er eignin fyrir 60 ára og eldri.
Í sameign er góður samkomusalur sem íbúar hússins hafa afnot af. Í húsinu er húsvörður og dyrasími með myndavél.


Allar nánari upplýsingar um eignina gefur Sigríður Lind Eyglóardóttir löggiltur fasteignasali, sigridur.lind@heimili.is  eða í síma 8994703


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á heimili@heimili.is og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

img
Sigríður Lind Eyglóardóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Heimili fasteignasala
Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
Heimili fasteignasala

Heimili fasteignasala

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
phone
img

Sigríður Lind Eyglóardóttir

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
1. ágú. 2012
26.150.000 kr.
26.300.000 kr.
88.3 m²
297.848 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Heimili fasteignasala

Heimili fasteignasala

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
phone

Sigríður Lind Eyglóardóttir

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík