Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Finnbogi Hilmarsson
Gunnlaugur A. Björnsson
Brynjólfur Snorrason
Ragnar Þorgeirsson
Sigríður Lind Eyglóardóttir
Ásdís Írena Sigurðardóttir
Elsa Björg Þórólfsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Holtagerði 11

200 Kópavogur

76.900.000 kr.

671.616 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2062409

Fasteignamat

74.900.000 kr.

Brunabótamat

49.700.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1956
svg
114,5 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

Heimili fasteignasala kynnir í einkasölu Holtagerði 11 í vesturbæ Kópavogs. Falleg 3ja herb. 77,6 fm. jarðhæð í tvíbýlishúsi ásamt 36,9 fm bílskúr sem hefur verið innréttaður sem studioíbúð, samtals er eignin skráð 114,5 fm.   Íbúð skiptist í tvö svefnherbergi, stofu, eldhús og baðherbergi.

** Bókið skoðun hjá sigridur.lind@heimili.is / 8994703 **


Nánari lýsing:
Komið er inn í sameiginlegt anddyri með efri hæð, þar er staðsett sameiginlegt þvottahús. Í íbúð er komið inn á flísalagðan gang með léttu fatahengi.  Stofa er björt með tveimur gluggum og eikarparketi á gólfi. 
Eldhús er með ljósri innréttingu, flísar á gólfi og rúmgóður borðkrókur.  Tvö ágæt svefnherbergi eru í íbúðinni með parketi á gólfum, stærra herbergi er með skápum.   Baðherbergið var endurnýjað fyrir einhverjum árum, baðkar með sturtuaðstöðu, handklæðaofn, upphengt klósett, gluggi, snyrtileg innrétting..


Bílskúr - studioíbúð tilvalin til útleigu, var byggður árið 2002, um svipað leiti voru frárennslislagnir endurnýjaðar frá húsinu og út í götu. 2017 er bílskúr einangraður og klæddur að utan með lituðu bárujárni og innréttaður sem studioíbúð. Stofa, eldhús og svefnaðstaða í opnu rými með harðparketi á gólfi. Eldhúsinnrétting með innbyggðum ísskáp, helluborði, bakarofni og uppþvottavél sem allt fylgir með við sölu. Baðherbergi er inn af svefnrými og er flísalagt. Upphengt salerni, handklæðaofn, sturta með hengi. Nett innrétting undir handlaug og stæði fyrir þvottavél. 

Að utan virðist húsið í ágætu standi, en komin tími á gler í einhverjum gluggum og þak þarfnast málningar. Gagnkvæmur forkaupsréttur er á íbúðunum í húsinu. 

Hér er um að ræða góða eign á vinsælum stað í vesturbæ Kópavogs. Mjög stutt í alla almenna þjónustu, skóla og leikskóla. 
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Sigríður Lind Eyglóardóttir fasteignasali, sigridur.lind@heimili.is / 8994703


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á heimili@heimili.is og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

img
Sigríður Lind Eyglóardóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Heimili fasteignasala
Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
Heimili fasteignasala

Heimili fasteignasala

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
phone
img

Sigríður Lind Eyglóardóttir

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
22. feb. 2016
28.150.000 kr.
31.000.000 kr.
114.5 m²
270.742 kr.
27. sep. 2007
19.590.000 kr.
23.500.000 kr.
114.5 m²
205.240 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Heimili fasteignasala

Heimili fasteignasala

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
phone

Sigríður Lind Eyglóardóttir

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík