Lýsing
Hönnun: THG arkitektar
Verktaki: JE Skjanni ehf.
Vefsíða verkefnisins við Pollinn á Akureyri
Íbúðin er samtals 77,3fm., þar af er geymsla 6,8fm.
Íbúðin:
Komið er inn í opið forstofu með skáp. Úr forstofunni er útgengt út á verönd til vesturs.
Opið eldhús, L - laga með kvarts stein og span helluborði. Skúffur og skápar í eldhúsinu eru allar með ljúflokum. Eldhúsinnrétting með kvarts stein, bakaraofn í vinnuhæð, innfelldur vaskur. Allar skúffur og skápar með ljúflokum. Innfelld lýsing frá Lumex.
Stofa/borðstofa, útgengt út á svalir til austurs með glæsilegu útsýni yfir pollinn.
Hjónaherbergi með góðum skáp.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Sturta með glerskili. Falleg innrétting frá Parka, kvarts steinn á borðplötu. Upphengt salerni. Skápur fyrir þvottavél og þurrkara, borðplata úr kvarts stein.
Allar innréttingar, innihurðir, skápar og Electrolux eldhústæki eru frá Parka. Blöndunartæki eru frá Tengi.
Íbúðinni er skilað fullbúinni en án gólfefna.
Sameign er með glæsilegra móti.
Komið er inn í rúmgott anddyri. Stórar ljósakrónur og lýsing frá Lumex gefa fallega birtu.
Hljóðplötur í lofti, þannig að hlóðvist verður með besta móti.
Flísar á gólfi frá kjallara og upp á pall fyrstu hæðar. Frá fyrstu hæð eru stigagangarnir teppalagðir.
Innangengt úr hverjum stigagangi niður í lokaða bílageymslu.
Eigninni er skilað skv. skilalýsingu verktaka.
Kaupandi greiðir skipulagsgjald 0,3% af brunabótamati þegar það leggst á eignina.
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:
Sölumenn Helgafells fasteignasölu
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 79.980,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.