Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
fjölbýlishús

Davíðshagi 2 íbúð 201

600 Akureyri

63.900.000 kr.

723.669 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2503551

Fasteignamat

55.950.000 kr.

Brunabótamat

46.500.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2019
svg
88,3 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

Davíðshagi 2 íbúð 201 - Glæsileg 4ja herbergja íbúð á 2. hæð í fjölbýli með lyftu í Hagahverfi – stærð 88,3 m²
Sér stæði í bílageymslu fylgir íbúðinni.

Eignin skiptist í forstofu/gang, eldhús og stofu í opnu rými, baðherbergi með þvottaaðstöðu og þrjú svefnherbergi. 
Sér 6,0 m² geymsla er í kjallara.
Steyptar 7,2 m² suður svalir. 


Forstofa er með vínyl parketi á gólfi og  fataskáp. 
Eldhús og stofa eru í opnu rými með vínyl parketi á gólfi og rennihurð út á steyptar suður svalir. Innrétting í eldhúsi er tvílit, eikaráferð og hvít og með flísaþiljum á milli skápa. Uppþvottavél er innfelld í innéttingu og fylgir með við sölu eignar. 
Svefnherbergi eru þrjú öll með vínyl parketi á gólfi og fataskápum, sexfaldur fataskápur er í hjónaherbergi.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja, vandaðri innréttingu, upphengdu wc og sturtu. Stæði er í innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara.
Sér geymsla er í kjallaranum, skráð 6,0 m² að stærð.
Sér stæði í bílageymslu

Annað:
- Allar innréttingar og innihurðar eru frá Tak innréttingum.
- Hljóðdempandi plötur eru í öllum loftum nema á baðherbergi. 
- Loftskiptikerfi er í íbúðinni. 
- Mynddyrasími.
- Hönnun handriðs og svala er með þeim hætti að auðvelt er að koma fyrir svalalokun í framtíðinni. 
- Eignin er í einkasölu

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Hvammur Eignamiðlun

Hvammur Eignamiðlun

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
3. maí. 2019
2.910.000 kr.
37.379.000 kr.
88.3 m²
423.318 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Hvammur Eignamiðlun

Hvammur Eignamiðlun

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone