Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Elísabet Kvaran
Heiðrekur Þór Guðmundsson
Vista
fjölbýlishús

Nýbýlavegur 90

200 Kópavogur

72.500.000 kr.

717.822 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2064577

Fasteignamat

66.450.000 kr.

Brunabótamat

43.390.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1972
svg
101 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Laus strax
svg
Svalir

Lýsing

Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.

Kaupstaður fasteignasala kynnir bjarta og fallega 3ja herbergja íbúð á annarri hæð, ásamt bílskúr, í tvílyftu 6 íbúða húsi, teiknuðu af Kjartani Sveinssyni. Íbúðin er talsvert endurnýjuð á síðustu árum og hefur húsið fengið reglulegt viðhald.

Góðar svalir og fallegt útsýni.

Eignin er skráð skv. fasteignaskrá HMS 101,1 m2. Íbúð 72,9 m2 og bílskúr 28,2 m2

Nánari lýsing

Anddyri: Frá sameign er gengið inn í anddyri með góðum fataskápum. Harðparket er á gólfi
Eldhús: Snyrtileg eldri innrétting með góðu borð- og skápaplássi. Ofn í vinnuhæð. Eldhúsið er bjart og opið í báða enda. Harðparket á gólfi
Stofa/borðstofa: Björt og rúmgóð. Útgengt á svalir. Harðparket á gólfi
Hjónaherbergi: Rúmgott með góðum fataskáp. Harðparket á gólfi
Barnaherbergi: Bjart og gott herbergi sem nýtist vel. Harðparket á gólfi
Baðherbergi: Algjörlega endurnýjað. Flísalagt í hólf og gólf, gott sturtuhorn og upphengt salerni.
Svalir: Mjög góðar 12m2 svalir með einstaklega fallegu útsýni til vesturs og norðurs.
Þvottahús/geymsla: Inn af eldhúsi er gott rými sem nýtist sem þvottahús og geymsla/búr. Flísar á gólfi.
Bílskúr: 28m2 bílskúr í lengju við húsið. Heitt og kalt vatn, skolvaskur og hiti.

Helstu endurbætur:
Húsið slípað og múrað 2013
Nýtt skólp undir öllu húsinu alla leið út að brunni 2016
Þakklæðning á öllu húsinu ásamt hluta borðaklæðningar endurnýjað 2017.

Í íbúð:
Baðherbergið allt tekið í gegn 2018/2019
Skipt út gömlu Ticino tenglunum og slökkvurum fyrir nýtt frá S Guðjónsson 2020.
Desember 2022: Öll íbúðin máluð nema þvottaherbergi, allt gólfefni (parket) ásamt gólf listum endurnýjað, nema bað og þvottaherbergi (flísar þar), nýr fataskápur hjónaherbergi, allar innihurðir nýjar nema útidyrahurð frá sameign inn í íbúð.

Frábært tækifæri til að eignast talsvert endurnýjaða íbúð á frábærum stað. Stutt er í leik- og grunnskóla, íþróttir og alla helstu þjónustu og verslanir."

Fyrirvarar

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

Kaupstaður fasteignasala

Kaupstaður fasteignasala

Borgartúni 29, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
14. sep. 2015
22.850.000 kr.
28.500.000 kr.
101.1 m²
281.899 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Kaupstaður fasteignasala

Kaupstaður fasteignasala

Borgartúni 29, 105 Reykjavík