Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Víðir Arnar Kristjánsson
Árni Helgason
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Vilborg Gunnarsdóttir
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Soffía Sóley Magnúsdóttir
Stefán Bjarki Ólafsson
Vista
fjölbýlishús

Langamýri 57

210 Garðabær

79.900.000 kr.

761.678 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2071277

Fasteignamat

67.600.000 kr.

Brunabótamat

52.410.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1990
svg
104,9 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

DOMUSNOVA fasteignasala og Margrét Rós lgf. kynna í sölu einstaklega fallega og mikið endurnýjaða 3ja herbergja endaíbúð á jarðhæð með sérinngangi, stórri timburverönd til suðurs og bílskúr við Langamýri 57 í Garðabæ. Birt stærð skv. fasteignaskrá HMS er 104,9 m2 og þar af er 21,2 m2 bílskúr, en 2,9 m2 sérgeymsla inn af sameignargangi er ekki inn í fermetratölu. Um er að ræða vel skipulagða íbúð í litlu fjölbýli í Garðabæ. Íbúðin skiptist í forstofu, gang, tvö svefnherbergi, eldhús og stofu í opnu rými, með útgengt út á stóra timburverönd, baðherbergi og þvottaherbergi innan íbúðar. Sér bílastæði fylgir eigninni beint fyrir utan íbúð. Vönduð eign á skjólsælum stað í Garðabæ. Allar nánari upplýsingar veitir Margrét Rós lgf. í s. 856-5858 eða margret@domusnova.is

Um er að ræða glæsilega og vel staðsetta eign á vinsælum og rótgróna stað í Garðabæ þar sem stutt er í alla helstu þjónustu og verslanir. Leikskóli, grunn,- og menntaskóli og fjölbreytt íþróttastarf er í göngufæri, ásamt fjölbreyttum verslunum og veitingarstöðum á Garðatorgi. Leikskólinn Bæjarból er handan við hornið og Hofsstaðaskóli er í göngu færri, því þarf ekki að fara yfir götu á leið í skólann. Örstutt er í góð útivistarsvæði til að njóta útiverunnar og frábærar göngu- og hjólaleiðir í nágrennin.

*** Smelltu hér til að fá söluyfirlitið sent ***

Skipulag og lýsing eignarhluta:
Gengið er inn um sérinngang í bjarta forstofu og gang sem tengir saman aðrar vistverur íbúðar. Á gangi eru tvö svefnherbergi og rúmgott baðherbergi. Inn af gangi tekur við opið og bjart alrými sem samanstendur af opnu eldhúsi með eldhúseyju og stofu/borðstofu. Inn af eldhúsi er þvottahús með glugga og útgengt er frá stofu/borðstofu á rúmgóða og skjólsæla timburverönd til suðurs. Harðparket á gólfi í stofu, gangi og herbergjum, og flísar á baðherbergi, eldhhús og þvottaherbergi, en þar er einnig gólfhiti. Rúmgóður bílskúr með hita, vatni og rafmagni. Íbúðinni fylgir 2,9 m2 sérgeymsla í sameign sem er ekki inn í fermetratölu eignarinnar, því er raunstærð 107,8 m2. Auk þess er sameignleg hjóla- og vagnageymsla í sameign.

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat

Nánari skipting eignar:
Forstofa: Með flísum á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi I: Rúmgott herbergi með góðum fataskáp og harðparket á gólfi.
Svefnherbergi II: Rúmgott herbergi með harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Mikið endurnýjað með upphengdu salerni, fallegri hvítri innréttingu og walk in sturtu, flísar á gólfi og veggjum að hluta.
Stofa/borðstofa: Opin og björt með góðum gluggum. Frá stofu er gengið út á stóra og skjólsæla timburverönd til suðurs
Eldhús: Opið við stofu og borðstofu með sérsmíðaðri innréttingu hönnað af Helgu Sig innanhússarkitekt. Eldhúseyja með span helluborði, bakara ofn í vinnuhæð, innbyggður ísskápur, uppþvottavél í innréttingu.
Þvottaherbergi: Inn af eldhúsi með góðri innréttingu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð ásamt skúffum undir og skáp á vegg.

Húsið að utan:
Langamýri 57 er tveggja hæða fjölbýlishús með níu íbúðum alls og fjórum bílskúrum. Á jarðhæð hússins er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla ásamt sérgeymslur íbúða. Húsið er steypt með bárujárnsklæddu þaki. Aðkoma að húsinu er til fyrirmyndar og aðgengi að íbúðinni er mjög gott þar sem gengið er beint inn af jarðhæð frá bílaplani. Lóðin er í sameign að undanskildum séreignarétt íbúða á jarðhæð aftan við hús, hellulögð stétt fyrir framan húsið og garður umhverfis húsið er vel hirtur. Gert er ráð fyrir allt að 16 bílastæðum á bílaplani samkvæmt teikningum.

Framkvæmdir á húsi og íbúð á árunum 2018-2024
  • Harðparket endurnýjað (2018)
  • Innihurðar endurnýjaðar (2023)
  • Flísar (subway tiles) inn á bað endurnýjaðar og sett gler splash back (2023)
  • Skáphurðar í forstofu endurnýjaðar (2023)
  • Gólfhiti og ofnar yfirfarnir (2024)

Nánari upplýsingar veita:
Margrét Rós Einarsdóttir - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s. 856-5858 / margret@domusnova.is
Aðalsteinn Bjarnason - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s. 773-3532 / adalsteinn@domusnova.is

VILTU VITA HVERS VIRÐI ÞÍN FASTEIGN ER Í DAG? BÓKA FRÍTT FASTEIGNAVERÐMAT
VILTU VITA HVAÐ VIÐSKIPTAVINIR OKKAR HAFA SEGJA? SMELLTU HÉR TIL AÐ LESA UMSAGNIR VIÐSKIPTAVINA
KÍKTU Í HEIMSÓKN Á SÍÐUNA MÍNA: Margrét Rós hjá Domusnova


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  • Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  • Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
  • Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  • Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  • Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
  • img
    Margrét Rós Einarsdóttir
    Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
    Domusnova fasteignasala
    Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
    Domusnova fasteignasala

    Domusnova fasteignasala

    Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
    phone
    img

    Margrét Rós Einarsdóttir

    Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
    Ár
    Fasteignamat
    Kaupverð
    Stærð
    Fermetraverð
    20. apr. 2022
    48.350.000 kr.
    26.500.000 kr.
    104.9 m²
    252.622 kr.
    16. des. 2019
    42.400.000 kr.
    52.500.000 kr.
    104.9 m²
    500.477 kr.
    4. jún. 2008
    23.380.000 kr.
    26.000.000 kr.
    104.9 m²
    247.855 kr.
    26. feb. 2007
    21.005.000 kr.
    25.500.000 kr.
    104.9 m²
    243.089 kr.
    Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
    Domusnova fasteignasala

    Domusnova fasteignasala

    Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
    phone

    Margrét Rós Einarsdóttir

    Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur