Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Víðir Arnar Kristjánsson
Árni Helgason
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Vilborg Gunnarsdóttir
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Soffía Sóley Magnúsdóttir
Stefán Bjarki Ólafsson
Vista
fjölbýlishús

Maríugata 32

210 Garðabær

77.500.000 kr.

855.408 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2511521

Fasteignamat

70.900.000 kr.

Brunabótamat

54.250.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2021
svg
90,6 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.

Lýsing

KRISTÍN EINARS. lgf. og DOMUSNOVA kynna einkar fallega, vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á 2 hæð í vönduðu fjögurra hæða fjölbýlishúsi með lyftu og sérinngangi af svalagangi.  Eignin er staðsett á rólegum og barnvænum stað í Urriðaholtinu í Garðabæ þar sem stutt er í leik- og grunnskóla.
Samkv. HMS skiptist eignin 85,5fm íbúð og 5,1fm geymslu, samtals 90,6fm


Lýsing eignar:
Forstofa, flísalögð og rúmgóð með fataskápum.
Hol/gangur, parketlagður.
Eldhús, opið við stofu og með glugga. Fallegar innréttingar frá Nobilia úr svartbæsaðri eik með innbyggðri uppþvottavél og ísskáp með frysti.  Kvartsteinn á borði.  
Eyja með kvartsteini á borði, spanhelluborð, hangandi háfur, áföst borðaðstaða, gott skápapláss.  Eldhústækin  frá AEG.
Stofa, björt og rúmgóð með gluggum til suðurs með gott útsýni.  Úr stofu er útgengi á 10,9 fm skjólsælar suðursvalir, möguleiki á svalalokun.
Barnaherbergi, með innbyggðum fataskápum. 
Baðherbergi, flísalagt gólf og hluti veggja, innrétting, vegghengt wc, handklæðaofn, flísalögð sturta með sturtugleri og stæði fyrir þvottavél og þurrkara.
Hjónaherbergi, mjög rúmgott, parketlagt og með stórum innbyggðum fataskápum.
Harðparket á gólfum fyrir utan votrými.
Á jarðhæð hússins er sérgeymsla, 5,1fm að stærð.
Á lóð er sameiginleg hjólageymsla.
Tvö hleðslustæði eru á bílastæðinu.

Falleg eign sem vert er að gefa nánari gaum.


Nánari upplýsingar veitir:
Kristín Einarsdóttir löggiltur fasteignasali / s.894 3003 / kristin@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  • Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  • Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
  • Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  • Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  • Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
  • Domusnova fasteignasala

    Domusnova fasteignasala

    Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
    phone
    Ár
    Fasteignamat
    Kaupverð
    Stærð
    Fermetraverð
    22. jan. 2021
    4.540.000 kr.
    49.900.000 kr.
    90.6 m²
    550.773 kr.
    Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
    Domusnova fasteignasala

    Domusnova fasteignasala

    Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
    phone