Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Hafliði Halldórsson
Vista
svg

86

svg

75  Skoðendur

svg

Skráð  22. júl. 2024

fjölbýlishús

Eskiás 1G íb. 206

210 Garðabær

77.900.000 kr.

970.112 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2515949

Fasteignamat

68.000.000 kr.

Brunabótamat

44.250.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2022
svg
80,3 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Sérinngangur

Lýsing

Ragnar Guðmundsson S: 844-6516 löggiltur fasteignasali hjá TORG fasteignasölu kynnir: 4ra herbergja  íbúð með sérinngangi merkt 206 á 2. hæð að Eskiás 1 í Ásahverfi Garðabæjar. Um er að ræða eign sem er skráð 80,3 fm. og skiptist í forstofu/anddyri, alrými sem rúmar eldhús, stofu og borðstofu, 3 svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og geymslu innan íbúðar. Frá alrými er útgengt á svalir sem snúa inn í sameiginlegan garð. Allar innréttingar í eldhúsi eru frá þýska framleiðandanum Nobilia og fataskápar koma frá Trésmiðju GKS. Innréttingar á baði eru frá Parka.
Göngufæri er í skóla, verslanir, veitingahús, sundlaug og alla helstu þjónustu. Einnig er stutt í góða og vel skipulagða göngu- og hjólastíg við sjávarsíðuna og Gálgahrauninu. Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Ragnar Guðmundsson löggiltur fasteignasali í síma 844-6516 eða ragnar@fstorg.is

***Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning***

Nánari lýsing:
Forstofa/anddyri: Komið er inn í anddyri með háum hvítum tvöföldum fataskáp. Skúffur í fataskápum eru vandaðar með mjúklokun. Harðparket á gólfi.
Svefnherbergi: Þrjú svefnherbergi með harðparketi á gólfum. Tvö af svefnherbergjum eignarinnar eru búin háum hvítum háum fataskápum. Skúffur í fataskápum eru vandaðar með mjúklokun. 
Alrými: Rúmar bæði eldhús, stofu og borðstofu. Frá alrými er útgengt út á svalir sem snúa út í fallegan sameiginlegan garð. Harðparket á gólfi.
Eldhús: Falleg ljósgrá innrétting með steingrárri borðplötu og góðum efri og neðri skápum. Efri skápar eru höldurlausir og með dimmanlegri LED lýsingu niður á borðplötu. Aðrir skápar og skúffur eru einnig höldulausir með svörtu LineN útfærslu á gripi. Ljúflokur eru á skúffum og skápahurðum. Blástursofn, spanhelluborð, tengi fyrir uppþvottavél og innbyggður ísskápur.  Harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Hvít innrétting frá Parka með innbyggðri handlaug í borðplötu. Neðri skápar eru með skúffum og LED lýstur spegill er yfir vask. Upphengt salerni, handklæðaofn (Stormberg Laveno), sturta með hertu gleri og þvottaaðstaða með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Hvíttað glerskilrúm stúkar af þvottavél og þurrkara. Öll hreinlætistæki eru frá Grohe. Baðherbergið er útbúið innbyggðri lýsingu og flísalagt í hólf og gólf.
Geymsla: Sérgeymsla er innan íbúðar. Í sameign er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. seljandinn hefur komið fyrir einum af fataskápum svefnherbergjanna inn í geymslu.
Rafbílahleðsla: Við byggingu eignar var sérstaklega gert ráð fyrir fjölda rafhleðslustæða og möguleikum til að auka fjölda þeirra þegar þörf krefur.

Ný og skemmtileg eign þar sem stutt er í leik- og grunnskóla, miðbæ Garðabæjar og alla helstu þjónustu ásamt því að vera í göngufæri við Ásgarðslaug (sundlaug Garðabæjar), og aðrar fallegar gönguleiðir meðfram sjávarsíðunni og Gálgahrauninu ásamt því að stutt er í almenningssamgöngur. Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Ragnar Guðmundsson löggiltur fasteignasali í síma 844-6516 eða ragnar@fstorg.is

Fáðu frítt söluverðmat fyrir eignina þína hér.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir
og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 

Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
31. ágú. 2022
35.950.000 kr.
67.900.000 kr.
80.3 m²
845.579 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone