Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Baldvin Ómar Magnússon
Vista
fjölbýlishús

Urriðaholtsstræti 14

210 Garðabær

79.900.000 kr.

786.417 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2501419

Fasteignamat

76.700.000 kr.

Brunabótamat

64.060.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2020
svg
101,6 m²
svg
3 herb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði

Lýsing

Bókið Skoðun hjá Baldvin Ómari  í síma 898-1177 eða baldvin@huseign.is

Húseign kynnir fallega og vel skipulagða 3ja herbergja 101,6 fermetra útsýnisíbúð á 3. hæð í nýlegu fjölbýli með lyftu við Urriðaholtsstræti 14 í Garðabæ. Íbúðin er með rúmgóðum svölum til suðurs og sérbílastæði í lokuðum og upphituðum bílakjallara. Sérgeymsla sem er 14,4 fermetrar að stærð með gluggum fylgir eigninni.

Húsið er afar fallegt byggt árið 2020, álklætt og viðhaldslítið með fallega frágenginni lóð. Hellulagðar stéttar fyrir framan hús. Sameiginleg stæði fyrir framan hús. Myndavéladyrasími er í íbúð og er sameign snyrtileg.

Um er að ræða eftirsótta staðsetningu í Urriðaholti Garðabæ. Leikskóli og grunnskóli í göngufjarlægð ásamt leiksvæðum. Afar fallegar göngu- og hjólaleiðir í næsta nágrenni um Heiðmörk, Urriðavatn og víðar. 

Lýsing eignar:
Forstofa: Með harðparketi á gólfi og góðum skápum.
Alrými samanstendur af stofu og eldhúsi.
Eldhús: Með harðparketi á gólfi og fallegri innréttingu frá HTH. AEG stál bakaraofn, AEG spanhelluborð og vifta yfir eyju með lýsingu. Stæði fyrir kæliskáp og tengi fyrir uppþvottavél. Lýsing undir efri skápum.
Stofa: Með harðparketi á gólfi. Útgengi á svalir.
Svalir: Stórar, með glerhandriði og mót suðri.
Borðstofa: Með harðparketi á gólfi og er staðsett  í eldhúsi. Gluggar með fallegu útsýni til norðurs.
Hjónaherbergi: Með harðparketi á gólfi, góðum skápum.
Svefnherbergi: Með harðparketi á gólfi, skápum.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og hluta veggja. Flísalögð sturta með glerþili. Falleg innrétting. Upphengt salerni, handklæðaofn og útloftun. Góð innrétting og upphækkun fyrir þvottavél og þurrkara.

Bílastæði: Er vel staðsett í lokuðum og upphituðum bílakjallara. Afar snyrtilegur bílakjallari þar sem búið er að leggja grunnkerfi fyrir bílhleðslustöðvar.
Sameiginleg vagna- og hjólageymsla: Er staðsett í sameign hússins. 
Sér geymsla: Er staðsett í sameign sem er 14,4 fermetrar að stærð með máluðu gólfi og gluggum.
Allar nánari upplýsingar veitir Baldvin Ómar í síma 898-1177 eða á skrifstofu Húseignar í síma 585-0100  baldvin@huseign.is
 

Húseign fasteignamiðlun

Húseign fasteignamiðlun

Suðurlandsbraut 20, 108 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
28. ágú. 2020
47.500.000 kr.
54.630.000 kr.
101.6 m²
537.697 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Húseign fasteignamiðlun

Húseign fasteignamiðlun

Suðurlandsbraut 20, 108 Reykjavík
phone