Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Snorri Sigurfinnsson
Loftur Erlingsson
Halldóra Kristín Ágústsdóttir
Steindór Guðmundsson
Vista
sumarhús

Snorrastaðir Skógarbrekka 3

806 Selfoss

29.900.000 kr.

738.272 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2233108

Fasteignamat

16.650.000 kr.

Brunabótamat

23.800.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1996
svg
40,5 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sérinngangur

Lýsing

Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali s.  896 9565 og Hús fasteignasala kynna í einkasölu:
Skógarbrekka 3 í Giljareitum í landi Snorrastaða skammt frá Laugarvatni,  40,5fm sumarhús á 6490fm EIGNARLÓÐ með frábæru útsýni. 

Inngangur er á langhlið hússins og forstofa þar með hengi fyrir yfirhafnir. Svefnherbergin tvö þar á hægri hönd, baðherbergið beint á móti og sameiginlegt rými stofu og eldhúss fram til vinstri. Svefnloft yfir herbergjum en upptekin loft í stofu. Kojur í öðru herberginu en ágætt pláss fyrir tvíbreytt rúm í hinu.  Baðherbergið með dúk á gólfi, hornsturtu, handlaug, speglaskáp og klósetti. Stofan björt og gengt út á pall, eldhúskorn með vaski og lítilli innréttingu, frístandandi bakarofn með tveimur hellum til eldunar á lausum skáp við hliðina. Tréstigi upp á svefnloftið og ísskápar bak við hann. Kynding er með rafmagnsofnum en heitt vatn er á lóðamörkum. Innbú fylgir að stærstum hluta við sölu eftir nánara samkomulagi. 
Að utan er húsið klætt með liggjandi viðarklæðningu, gluggar og hurðir úr tré og stallað stál á þaki.  Stór pallur allt í kringum húsið og útsýni til Heklu, Tindfjalla og Eyjafjallajökuls. Lóðin töluvert hátt í hlíðinni, vaxin skógi og kjarri.  Í Giljareitum er starfrækt öflugt félag sumarhúsaeigenda, þar er hitaveita til staðar og læst öryggishlið inn á svæðið. 
Aðeins 5mín akstur inn á Laugarvatn hvar finna má m.a. Fontana Spa, bensínstöð og matvörubúð, sundlaug og matsölustaði. Þá er svæðið í hálendisbrún landsins fyrir þá sem sækja í það, og stutt í stangveiði í Hólaá, Laugarvatni og Apavatni svo eitthvað sé nefnt. 
Sannkallaður sælureitur. 

Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali veitir allar nánari upplýsingar og sýnir eignina.
S. 896 9565    loftur@husfasteign.is  
 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna:

1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, (0,4% fyrstu kaup)  lögaðilar 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.
 
Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

img
Loftur Erlingsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
HÚS fasteignasala
Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum, Hlíðasmára 2 Kópavogi
HÚS fasteignasala

HÚS fasteignasala

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum, Hlíðasmára 2 Kópavogi
img

Loftur Erlingsson

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum, Hlíðasmára 2 Kópavogi
HÚS fasteignasala

HÚS fasteignasala

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum, Hlíðasmára 2 Kópavogi

Loftur Erlingsson

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum, Hlíðasmára 2 Kópavogi