Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Heiðar Kristinsson
Bjarklind Þór Olsen
Hulda Rún Rúnarsdóttir
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1979
svg
73 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Sérinngangur

Lýsing

Borgir  fasteignasala kynnir eignina Birkilundur 6, 806 Selfoss, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 220-9085 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Eignin Birkilundur 6 er skráð sem sumarhús.Birt stærð 73.0 fm.

Fasteignamat 2025 verður 32.200.000

Seljandi skoðar skipti á íbúð á t.d stórhöfuðborgarsvæðinu eða Akureyri.

Nánari upplýsingar veita:
Jóhanna M Jóhannsdóttir, Löggiltur fasteignasali, í sima 8200788, tölvupóstur johanna@borgir.is


ENDURNÝJAÐ UTAN SEM INNAN og NÝBYGGT GESTHÚS TILBÚIÐ T.D. TIL ÚTLEIGU.

Nýlega endurnýjað sumarhús í jaðri sumarhúsabyggðar við Þingvallavatn í landi Miðfells á eignalóð með öryggishliði inn á svæðið. Einstaklega fallegt svæði þar sem stutt er á rómaða útivistar- og náttúrufegurðarstaði á suðurlandinu. Um hálftíma akstur í alla þjónustu Selfoss. Eignin er skráð 73 fm með möguleika á stækkun. Aðal húsið er 56,51fm og Gesthúsið 17,4fm. Nýbyggt gesthús með salerni og sturtu sem er búið að vera í ferðamannaútleigu með bókað fram á haustið.  Einnig eru tveir geymsluskúrar 3.4fm og 6 fm (kaldar geymslur.) Lóðin gerir ráð fyrir að megi stækka eða byggja aðalhús allt að 100 fm samkvæmt tilskyldum leifum. Heilsárshús.

Aðalhús skiptist í; samliggjandi inngang, hol, eldhús, borðkrók og stofu, -baðherbergi með sturtuklefa, vask í nnréttingu og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara, opnanlegur gluggi. Svefnherbergi með litlu fataherbergi. Eldhúsið er með vél sem er helluborð, bakarofn og uppþvottavél neðst. Möguleiki að láta húsgögn fylgja ásamt tvöfölldum ísskáp.

Gesthús er með svefn- og seturými, fatahengi, vask í innréttingu, ísskáp, örbylgjuofni og baðherbergi með glugga og sturtuklefa. Húsgögn í gesthúsi fylgja, þá tilbúið til útleigu. 

Aðalhús var stækkað úr 27,3 fm í 56,51 fm á árunum 2018-2020, (leyfi komið fyrir stækkun í 73fm)  Útveggir ásamt gólfi og lofti var allt rifið að innan og stoðir þykktar og einangrað uppá nýtt, síðan rifið utan frá og settar nýjar krossviðsplötur ásamt pappa og klætt.
2023 var gólf í alrými rifið upp og steyptir undirstöðustólpar ásamt að setja nýja bita og gólf grind og einangrað, músanet undir öllum bústaðnum, nýtt parket sett á og ný eldhúsinnrétting sett upp haustið 2023, skipt um 2 glugga, en nýir gluggar eru til í allt húsið sem eru hvítir furugluggar frá Skanva.
150 lítra hitavatnskútur. Varmadæla frá 2021 til hitunar.
Gestahús byggt 2020-2023, tekið í notkun vorið 2023.  Pallur við húsið er ca 50 fm.  Bátalægi er niður við vatn.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Vill Borgir því skora væntanlega kaupendur á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bæra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 62.000 mvsk.

Borgir fasteignasala

Borgir fasteignasala

Suðurlandsbraut 18 3.hæð, 108 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
11. apr. 2024
29.550.000 kr.
26.000.000 kr.
73 m²
356.164 kr.
30. ágú. 2016
4.962.000 kr.
6.900.000 kr.
27.3 m²
252.747 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Borgir fasteignasala

Borgir fasteignasala

Suðurlandsbraut 18 3.hæð, 108 Reykjavík
phone