Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Árni Þorsteinsson
Ólafur Kristjánsson
Anna F. Gunnarsdóttir
Vista
lóð

Suðurleið 30

801 Selfoss

12.900.000 kr.

1.164 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2341039

Fasteignamat

10.150.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
11085 m²
svg
0 herb.
svg
Útsýni
svg
Laus strax

Lýsing

Byggingarlóð 11085,0 m². Lóðin Suðurleið 30 Tjarnabyggð 801 Selfossi er staðsett norðan megin við Suðurleið 32, norðvestan megin við hringtorgið.
Á henni er falleg tjörn, villtur gróður, víðir, mjaðjurt ofl.
Töluvert fuglalíf.
Frábært útsýni yfir í Ölfus, Hveragerði, Ingólfsfjall. Einnig sést vel til Heklu og Eyjafjallajökuls.
Engar lóðir eru skipulagðar vestan og norðan við hana.

Nánar um búgarðabyggðina: Hér má byggja allt að 1500 fm húsnæði á hverri lóð, Svæðinu er skipt upp í klasa og eru 5-6 lóðir í hverjum klasa í kringum hringtorg.  Heimiluð er ýmis atvinnustarfsemi, á svæðinu, tengd landbúnaði í samræmi við aðalskipulag Árborgar. Samningur er við Sveitarfélagið Árborg um rekstur og þjónustu svæðisins. Samkvæmt honum sér Árborg um viðhald vega, snjómokstur, skólaakstur og sorphirðu. Hitaveita og Ljósleiðari er í Tjarnabyggð. Auðugt fuglalíf er í Tjarnarbyggð og fuglafriðlandið er ekki langt þar frá.

Hafið samband við Árna Þorsteinsson löggiltan fasteignasala á arni@fmg.is og í síma 898-3459 fyrir nánari upplýsingar og til að bóka skoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign: Stimpilgjald af kaupsamningi: 0.8% af fasteignamati eignar fyrir einstaklinga en 1.6% fyrir lögaðila, en 0.4% ef um fyrstu íbúðarkaup er að ræða. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali. Umsýslugjald fasteignasölu, samkvæmt gjaldskrá. Skoðunarskylda kaupanda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren og skólp.          

img
Árni Þorsteinsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignamiðlun Grafarvogs
Spönginni 11, 112 Reykjavík
Fasteignamiðlun Grafarvogs

Fasteignamiðlun Grafarvogs

Spönginni 11, 112 Reykjavík
phone
img

Árni Þorsteinsson

Spönginni 11, 112 Reykjavík
Fasteignamiðlun Grafarvogs

Fasteignamiðlun Grafarvogs

Spönginni 11, 112 Reykjavík
phone

Árni Þorsteinsson

Spönginni 11, 112 Reykjavík