Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Heimir Hafsteinn Eðvarðsson
Björgvin Þór Rúnarsson
Haukur Halldórsson
Árni Björn Erlingsson
Vista
sumarhús

Leynir Bleikhóll 1

806 Selfoss

39.900.000 kr.

663.894 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2206376

Fasteignamat

19.800.000 kr.

Brunabótamat

19.900.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1986
svg
60,1 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Sérinngangur

Lýsing

Leynir Bleikhóll lóð 1, Bláskógarbyggð, Fallegt hús með góða útleigu möguleika, á 13.333 fm eignalóð.

Bústaðurinn stendur á friðsælum skjólsælum stað og er lóðin skógi vaxinn. 


Fasteignaland kynnir: Sumarhús í skipulagðri sumarhúsabyggð í landi Böðmóðstaða stutt frá Laugarvatni. Um er að ræða 60,1 fm sumarhús staðsett í botnlanga með fjórum svefnherbergjum með svefnplássi fyrir ríflega átta manns. Lítill geymsluskúr er á lóðinni við húsið, heitur pottur og hitaveita með varmaskiptibúnaði. Búið er að endurnýja húsið að hluta, t.d. var bætt við tveimur svefnherbergjum fyrir nokkrum árum þannig að það er nýr panill á hluta svefnálmu.

Lýsing á eign: Forstofa með parketi á gólfi og fatahengi.  Snyrtilegt baðherbergi með dúk á gólfi, handklæðaofni, sturtuklefa og lítilli baðinnréttingu, stórt eldhús með parketi á gólfi, viðarinnréttingu með sambyggðri eldavél og uppþvottavél. Hol með parketi á gólfi. Fjögur herbergi með parketi á gólfi.  Stofa með parketi á gólfi og útgengt út á sólpall.

Vel hefur gengið að leigja þennan bústað út, og hefur hann fengið góðar viðtökur á Airbnb síðunni, sjá hér : www.airbnb.com

Sólpallur með heitum potti og fallegur gróinn garður.

Lóðin er 13.333 fm, endalóð vel gróin og skógivaxin.
Möguleiki að fá hluta af búslóð með í kaupum á eigninni.

Rekstrar kostnaður samkvæmt eiganda:
Fasteignargjald
ca kr 166þús/ári
Rafmagna ca kr. 6þús/mán
Hiti ca kr. 11þús/mán (22þus á 2mánða fresti)
Kalt vatn ca  kr. 25þús/ári
Sumarhúsafélag ca kr. 10þús /ári

Stutt í golfvelli, verslun, sund og margt fleira. 
Húsið heitir Bleikhóll, vegna mikils bláberjalings sem hefur gert hólinn bleikann á haustin þegar vel lætur.


Nánari upplýsingar veita:
Árni Björn Erlingsson, löggiltur fasteignasali s. 898-0508 netfang: arni@fasteignaland.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 

img
Árni Björn Erlingsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignaland ehf
Skeifunni 2, 108 Reykjavík.
Fasteignaland ehf

Fasteignaland ehf

Skeifunni 2, 108 Reykjavík.
img

Árni Björn Erlingsson

Skeifunni 2, 108 Reykjavík.
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
26. jún. 2019
15.050.000 kr.
13.800.000 kr.
60.1 m²
229.617 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Fasteignaland ehf

Fasteignaland ehf

Skeifunni 2, 108 Reykjavík.

Árni Björn Erlingsson

Skeifunni 2, 108 Reykjavík.