Lýsing
Eignin er skráð 59,5 fm samkvæmt fasteignayfirliti HSM en henni fylgir geymsla undir anddyri og hlutdeild í sameign, sameiginlegu þvottahúsi og hjólageymslu.
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit en annar eru allar frekari upplýsingar veittar í síma 663 2300 eða thorey@landmark.is.
Nánari lýsing
Forstofa með fatahengi, teppi á gólfi.
Stofa og borðstofa, samliggjandi rými, teppi á gólfi útgengt á suðurverönd.
Eldhús með eldri innréttingu, dúkur á gólfi.
Svefnherbergi með fataskáp, dúkur á gólfi.
Baðherbergi með handlaug, salerni og sturtu, flísalagt að mestu.
Geymsla með skertri lofthæð undir anddyri.
Þvottahús, sameiginlegt á jarðhæð.
Greitt er í tvö húsfélög og eru húsgjöld í húsfélagið Snæland 3 kr. 13.289 á mánuði en þá er allur hiti innifalinn, rafmagn í sameign þrif sameignar og sorpgeymslu sem og einnig húseigendatrygging. Húsgjöld í húsfélagið Snæland 1 - 3 eru kr. 1.850 á mánuði en þar er fyrirhuguð hreinslun á rennum og niðurföllum, samþykkar framkvæmdir og kostnaður um kr. 70.000 samkvæmt yfirlýsingu húsfélags. Inneign í sjóð kr 756.284.
Húsið hefur fengið gott viðhald á síðustu árum:
2017-2018: Niðurföll, svalir og múrverk
2019: Dren, lagnir, niðurföll við suðurhlið hússins, brunnar upphækkaðir.
2020: Þak endurnýjað, þakkantur, rennur, nýir gluggar í stigahúsi, nýjar hurðir í hjóla og ruslageymslu, tréverk á svölum og við kjallaratröppur ( handrið ), endurnýjað.
2021: Útiljós, anddyri og fyrir fofan hjóla og ruslageymslur, rennur hreinsaðar, kjallaratröppurlagðar, sílanbornar og málaðar með tröppumálingu. Húsið allt málað, allt tréverk, allt járnverk og svalagólf. Þak á anddyri, sílanborið og málað. Gluggar yfirfarnir, opnanleg fög og svalahurðir, skipt um þar sem þurfti.
Allar frekari upplýsingar veiti ég í síma 663 2300 eða gegnum thorey@landmark.is en eins má finna umsagnir viðskiptavina minna á www.thorey.is.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 79.000 m/vsk.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Panta FRÍTT söluverðmat