Lýsing
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 51,2 fm og þar af er geymsla 3,1fm.
Nánari lýsing:
Anddyri er með fataskáp og parketi á gólfi.
Stofa er björt og rúmgóð með parketi á gólfi.
Eldhús er opið við stofu með dökkri innréttingu, eldhústæki frá Electrolux, helluborð, gufugleypir og parket á gólfi.
Svefnherbergi er rúmgott með parketi á gólfi. Útgengi er úr svefneherbergi á yfirbyggðar svalir.
Baðherbergi er með snyrtilegri innréttingu, sturtu, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, handklæðaofn og flísar í hólf og gólf.
Sérgeymsla er í sameign á hæð íbúðar.
Vel staðsett eign miðsvæðis í Reykjavík þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.
Allar nánari upplýsingar veitir Kristín María Stefnásndóttir löggiltur fasteignasali í síma 837-1177 eða á netfanginu kristin@trausti.is.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.