Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Hafliði Halldórsson
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Hjarðarhagi 40

107 Reykjavík

69.900.000 kr.

771.523 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2028360

Fasteignamat

64.900.000 kr.

Brunabótamat

36.790.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1956
svg
90,6 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing


TORG FASTEIGNASALA KYNNIR: Björt og rúmgóð, tveggja herbergja, 90,6 fm íbúð með bílskúr, á 1. hæð við Hjarðarhaga 40, Reykjavík. Íbúðin skiptist í hol, stofu, eldhús, svefnherbergi og baðherbergi. Geymsla fylgir í sameign og herbergi/geymsla á rislofti. Innbú fylgir ásamt þvottavél í sameiginlegu þvottahúsi í kjallara. Íbúðin er vel staðsett í hjarta Vesturbæjar, stór og falleg lóð og stutt í helstu þjónustu og skóla. Allar nánari upplýsingar veitir Matthildur Sunna Þorláksdóttir, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali, í síma 690-4966 eða matthildur@fstorg.is.

Nánari lýsing: Eignin er skráð samkvæmt fasteignamati ríkisins: Íbúð 59,1 fm, geymsla 4,0 fm, herbergi í risi 3,5 fm, bílskúr 24,0 fm. Samtala 90,6 fm.

Íbúðin er afar björt og vel skipulögð á 1. hæð þar sem gengið er upp hálfa hæð frá inngangi í húsið.
Komið er inn í anddyri, með djúpum skáp, sem tengir öll rými íbúðar saman.
Eldhúsið er með hvítri innréttingu og viðarlitaðri borðplötu, eldavél, bakaraofn og ísskápur fylgir.
Stofan er björt og rúmgóð og með útgengi á svalir til suðaustur. Sameiginlegur, gróinn garður.
Rúmgott hjónaherbergi með góðu skápaplássi og innbyggðu snyrtiborði.
Baðherbergi  er með nettri, grárri skúffueiningu undir vaski og baðkari með sturtu. Flísar á gólfi og vegg að hluta til.
Harðparket er á gólfum íbúðar fyrir utan baðherbergi.
Bílskúr 24 fm fylgir eigninni. Bílskúrslengjan er við enda húslengjunar.
Herbergi/geymsla ( 4 fm) með glugga er á efstu hæð.
Sameiginlegt þvottahús er í kjallara hússins ásamt sér 3,5 fm geymslu.
Sameiginleg vagna/hjólageymsla.
Sameign er öll einkar snyrtileg og vel við haldið.


Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,-. Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á. 
 
TORG fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
21. maí. 2012
15.250.000 kr.
17.900.000 kr.
66.6 m²
268.769 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone