Lýsing
Miklaborg kynnir: 3 ja. herbergja endaíbúð á 2 . hæð í lyftublokk á Grandavegi 45 í Reykjavík. Björt stofa með góðum suð-vestur svölum. 2 svefnherbergi. Þvottahús innan íbúðar. Sérgeymsla í kjallara. Stutt í þjónustu og verslanir.
Leitið upplýsinga hjá Friðrik dí s. 616 1313
NÁNARI LÝSING: Komið er inn í forstofu með fataskáp. Úr forstofu er gengið inn í stórt hol / sjónvarpsrými. Stofan er björt og rúmgóð og er útgengi úr henni á svalir sem snúa til suðvesturs. Eldhús er með upprunalegri innréttingu úr hvítu og beyki og borðkrók. Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni; hjónaherbergið er rúmgott með heilum skápavegg og barnaherbergi er einnig með skáp. Baðherbergi er með baðkari og innbyggðum sturtuklefa. Þvottahús er innan íbúðar með tengi fyrir þvottavél og þurkara. Sér geymsla er í kjallara og þar er einnig sameiginlegt þurrkherbergi og hjólageymsla. Utan við hús er hjólastólarampur og hjólastólastæði.
Járn og pappi á þaki hússins var endurnýjað 2021 og á sama tíma skipt var um þá glugga íbúðar sem endurnýja þurfti, á grundvelli úttektarskýrslu Verksýnar. Sprunguviðgerðir standa yfir á ytra byrði húss.
Góð íbúð í lyftuhúsi á vinsælum stað í vesturbænum. Stutt í þjónustu og verslanir.
Allar nánari upplýsingar gefur Friðrik Þ. Stefánsson lögmaður og lögg. fasteignas. í s. 616 1313 eða fridrik@miklaborg.is .