Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Runólfur Gunnlaugsson viðskiptafr.
Ásmundur Skeggjason
Jóhann Friðgeir Valdimarsson
Kristinn Tómasson viðsk.fr. MBA
Þórarinn Friðriksson
Vista
sumarhús

Suðurheiðarvegur 10

805 Selfoss

54.900.000 kr.

697.586 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2272338

Fasteignamat

52.550.000 kr.

Brunabótamat

50.800.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2001
svg
78,7 m²
svg
0 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Sérinngangur

Lýsing

Fallegt og vel skipulagt sumarhús, byggt 2001 ásamt gestahúsi, byggt 2009, auk geymslu fyrir grill og verkfæri, á þessum eftirsótta og veðursæla stað. Húsið stendur við opið óbyggt svæði og er fallegt útsýni til suðurs og að Ingólfsfjalli. Mikill gróður er í landinu og skemmtileg aðkoma að húsinu. Góð verönd er við þrjár hliðar hússins um 100 fermetrar, með nýlegum heitum potti. Húsið stendur á 7.000 fermetra eignarlóð. Heitt (3 mínútulítrar) og kalt vatn frá veitufyrirtækjum. Húsið er innan hliðs í Norðurkotslandi.

Sumarhúsið skiptist í forstofu með geymslu innaf, baðherbergi með tengi fyrir þvottavél eða hægt að koma fyrir sturtuklefa, allar lagnir til staðar, tvö svefnherbergi, eldhús er opið við stofu, útgangur er á verönd úr stofu. Svefnloft er í húsinu um 20 fermetrar að gólffleti. Parket er á stofu, herbergjum og svefnlofti, dúkur á forstofu og baðherbergi. Gestahúsið skiptist í forstofu, innaf henni er svefnherbergi og baðherbergi með sturtuklefa, linóleumdúkur er á gólfum. Stærð sumarhúss er um 62 fermetrar með forstofu sem er ekki meðtalinn í uppgefnum fermetrum. Stærð gestahúss er 20 fermetrar. Komið hefur verið fyrir forðakúti frá Gjöfli við húsið, sjá nánar á gjofull.is.

Hér er á ferðinni einstaklega fallegt og vel staðsett hús, í fögru umhverfi sem margir hafa beðið eftir. Húsið er til afhendingar strax. Fasteignamat 2025 er kr. 52.550.000.
Allar nánari upplýsingar veitir Ásmundur Skeggjason fasteignasali, asmundur@hofdi.is, Gsm 895 3000.-

Höfði  fasteignasala

Höfði fasteignasala

Suðurlandsbraut 52, 108 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
31. ágú. 2017
29.580.000 kr.
23.300.000 kr.
78.7 m²
296.061 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Höfði  fasteignasala

Höfði fasteignasala

Suðurlandsbraut 52, 108 Reykjavík
phone