Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Dan Valgarð S. Wiium
Ásta María Benónýsdóttir
Upplýsingar
svg
Byggt 1927
svg
185,8 m²
svg
7 herb.
svg
2 baðherb.
svg
5 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur
Opið hús: 23. júní 2025 kl. 16:30 til 17:00

Lýsing

Kjöreign fasteignasala kynnir fallegt og mikið endurnýjað einbýlishús við Brekkustíg 4a.  Húsið er á þremur hæðum og hefur verið smekklega endurnýjað. Húsið skiptist í 4 svefnherbergi, bókaherbergi, stofu, borðstofu, eldhús, alrými (sjónvarps-og tómstundarými), tvö baðherbergi, þvottahús, og útigeymslu. Góður sólpallur er í garðinum.  
Nánari lýsing: 
Komið er inn á miðhæðina en þar er forstofa með fatahengi og flísum á gólfi. Eldhúsið er með fallegri hvítri innréttingu,  hurð er út á svalir frá eldhúsi sem setur skemmtilega stemmingu í eldhúsið.  Ný Smeg eldavél er í eldhúsi. Stofa og borðstofan eru samliggjandi og er fallegur arinn í stofu. Bókaherbergi er innaf stofu. Gengið er upp teppalagðan stiga og komið í alrými á efri hæð (auðvelt að stúka af herbergi) hátt til lofts, fallegir gluggar og svalir.  Þar er sjónvarps-og tómstunda aðstaða.  Á efri hæð er einnig hjónaherbergi og gott baðherbergi. Hjónaherbergið er með sér smíðuðum skáphurðum en fataskápurinn sjálfur frá Ikea. Öll efrihæð er með linolium dúk. Baðherbergið er með frístandandi baðkari og flísum á gólfi. Á neðstu hæð eru þrjú herbergi, baðherbergi og þvottahús. Tvö góð herbergi annað með innbyggðum skáp/geymsluskáp og hitt með fataskáp. Þriðja herbergið er minna og er nýtt i dag sem geymsla og búr. Herbergin eru með harðparketi. Baðherbergið er með "walk in" sturtu og ágætis innréttingu. Flísar á veggjum og gólfi. Þvottahúsið er innaf baðherbergi með skápum. Flísar á gólfi.  Tveir inngangar eru í húsið, þ.e.  aðalinngangur er inn á miðhæð og svo inngangur í kjallara. Köld útigeymsla er í kjallaratröppum undir útidyratröppum á efri hæðinni.  Garðurinn er fallegur með nýlegum sólpalli. Verið er að sækja um hleðslustaur við húsið
Gudjon Fridriksson sagnfræðingur skrifaði um húsið: 
Hús dagsins . Brekkustígur 4A. Dæmi um hús sem var lengst af fremur fábrotið steinhús með lágu þaki en hefur verið gjörbreytt og er sannkölluð borgarprýði. Það var upphaflega reist af hjónunum Marteini Halldórssyni, sem lengi var bílstjóri hjá O. Johnson & Kaaber, og Katrínu Jónasdóttur eftir teikningu Björns Rögnvaldssonar frá árinu 1926. Þar bjuggu þau til 1947 en þá keypti húsið Halldór Magnússon verkamaður og Sesselja Einarsdóttir og voru þar næstu áratugi. Gerður Óskarsdóttir kennslufulltrúi og síðar fræðslustjóri bjó í húsinu á 10. áratug síðustu aldar en fyrir meira en 15 árum keyptu hjónin Gunnar Helgi Kristinsson prófessor og María Jónsdóttir félagsráðgjafi húsið. Eftir 2010 réðust þau í stórfellda breytingu á því eftir teikningu Guðnýjar Örnu Eggertsdóttur arkitekts. Hátt skífulagt mansardþak með útstæðum gluggakvistum var sett á húsið og efri gluggafög öll höfð fjórskipt, en kjallaragluggar götumegin með smárúðum. Svo vel heppnaðar og smekklegar voru þessar breytingar að engum, sem sér húsið, dettur annað í hug en að það hafi alltaf litið svona út.
Frá seljanda um húsið: 1998 Skipt um jarðveg í lóð að mestu leyti – settur sandur/grús – og skólp- og frárennslilagnir endurnýjaðar. Pallur byggður og stéttar lagðar. Baðherbergi í kjallara var fært og hitagrind ásamt þvottaaðstöðu sett upp. Stigi niður í kjallara endurnýjaður. Hæð parketlögð.  2010 Húsið stækkað á norðurhlið um 60 fermetra, efsta hæð endurbyggð frá grunni, útitröppur endurnýjaðar, gert ráð fyrir hitalögn (en ekki verið tengt ennþá). Búnar til tvennar svalir. Þá voru kvistar settir sunnan megin, bíslag, þaki lyft og það endurnýjað. Jafnframt voru lagnir endurnýjaðar að hluta, linolíoumdúkur settur á efri hæð og flísar í eldhús og hluta af kjallara. Baðherbergi á efri hæð fært og allt endurgert. Allir gluggar (Velfac) og úthihurðir (nema að geymslu) endurnýjaðir. Einangrun var endurnýjuð í kjallara og á efri hæð. Eldhús endurnýjað ásamt eldavél, viftu og gasi. Tveir gaskútar eru í skáp á svölum með tengingu við eldavél. Tenging endurnýjuð 2023. 2018 Einangrun endurnýjuð í útveggjum í stofum. Sama ár var drenað upp á nýtt götumegin og við austurhlið hússins og auk þess skipt um jarðveg (grús). Áður hafði verið drenað norðan megin, en ekki er vitað um ástand vestan megin við húsið, í undirgangi sem þar er. Brunnur endurnýjaður og ný rist sett á niðurfall.  2020 Nýr stigi lagður upp á loft og báðir stigar teppalagðir. Nýtt handrið frá hæð og upp. 2022 Skáphurðar í svefnherbergi endurnýjaðir. Sama ár var pallur endurnýjaður og girðingar einnig (að hluta árið á undan). Bílaplan hellulagt upp á nýtt.
Annað  Parket á hæð er gegnheilt en illa farið. Eldhúsinnrétting er farin að láta á sjá. Ofnar voru endurnýjaðir í öllu húsinu 2010 fyrir utan tvo pottofna í herbergjum í kjallara, annar þeirra er orðinn lélegur. . Klósetttkassa  í kjallara og efri hæð þarf að endurnýja bráðlega en eru enn í lagi.


Upplýsingar gefa sölumenn Kjöreignar ehf. í síma 533-4040 eða kjoreign@kjoreign.is. Vinsamlegast pantið skoðunartíma.
Ásta María Benónýsdóttir lögg. fasteignasali gsm. 897-8061 asta@kjoreign.is
Dan Wiium hdl., og lögg. fasteignasali gsm. 896-4013 dan@kjoreign.is

 

img
Ásta María Benónýsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Kjöreign fasteignasala
Ármúla 21, 108 Reykjavík
Kjöreign fasteignasala

Kjöreign fasteignasala

Ármúla 21, 108 Reykjavík
phone
img

Ásta María Benónýsdóttir

Ármúla 21, 108 Reykjavík
Kjöreign fasteignasala

Kjöreign fasteignasala

Ármúla 21, 108 Reykjavík
phone

Ásta María Benónýsdóttir

Ármúla 21, 108 Reykjavík